Collector
Air China hefur flug til Norður-Kóreu að nýju | Collector
Air China hefur flug til Norður-Kóreu að nýju
Fréttastofa RÚV

Air China hefur flug til Norður-Kóreu að nýju

Flugvél Air China á flugvellinum í Peking.EPA / WU HAO Kínverska flugfélagið Air China hefur flug að nýju í dag frá Peking í Kína til Pjongjang í Norður-Kóreu. Flugfélagið hefur ekki flogið þessa leið í sex ár. Samgöngur milli Kína og Norður-Kóreu hafa verið mjög takmarkaðar frá því í covid-19 faraldrinum. Lestasamgöngur hófust að nýju fyrr í þessum mánuði. Kína opnaði landamæri sín fyrir nokkru en yfirvöld í Norður-Kóreu hafa farið hægar í að opna landamæri sín að nýju. Enn sem komið er veita yfirvöld í Norður-Kóreu aðeins vegabréfsáritanir þeim ferðamönnum sem eru á leið til landsins í opinberum eða sérstökum erindagjörðum.

Go to News Site