Collector
Lögregla skaut mann sem var eftirlýstur í sjö mánuði | Collector
Lögregla skaut mann sem var eftirlýstur í sjö mánuði
Fréttastofa RÚV

Lögregla skaut mann sem var eftirlýstur í sjö mánuði

Lögregla fann og skaut til bana mann sem var eftirlýstur í sjö mánuði í Viktoríufylki í Ástralíu í gær. Maðurinn, Dezi Freeman, var eftirlýstur fyrir morð á tveimur lögreglumönnum. Lögreglumennirnir tveir voru við húsleit á heimili Freemans í Porepunkah í ágúst þegar hann skaut þá báða til bana. Einn lögreglumaður til særðist í árásinni. Freeman flúði af vettvangi og inn í þjóðgarð þar sem mikið er um aflögð námugöng. Lögregla lýsti eftir honum og bauð eina milljón ástralskra dollara, jafnvirði rúmlega 86 milljóna íslenskra króna, fyrir upplýsingar sem leitt gætu til handtöku hans. Hundruð lögreglumanna leitað síðan leitað Freemans vítt og breitt um þétt kjarrlendi Viktoríu. Hann fannst að lokum í hjólhýsi í Tholongolong sem er á afskekktum stað. Hann neitaði að gefast upp og til átaka kom milli hans og lögreglumanna sem lauk með því að lögreglan skaut manninn. Freeman hefur verið lýst sem samsæriskenningarmanni og félaga í hreyfingu sem kennir sig við fullvalda ríkisborgara sem telja sig ekki þurfa að fara að lögum.

Go to News Site