Collector
Urðu fyrir bíl á gangstétt utan við söluskálann í Varmahlíð | Collector
Urðu fyrir bíl á gangstétt utan við söluskálann í Varmahlíð
Fréttastofa RÚV

Urðu fyrir bíl á gangstétt utan við söluskálann í Varmahlíð

Barn og fullorðinn sem urðu fyrir bíl í Varmahlíð í gær eru enn á Landspítala og ekki eru veittar frekari upplýsingar um líðan þeirra. Þau voru á gangstétt fyrir utan söluskála Olís í Varmahlíð síðdegis þegar slysið varð. Þau voru flutt með sjúkrabíl á Sauðárkrók og þaðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Mörg vitni voru að slysinu. Söluskálanum var lokað, áfallateymi kallað á staðinn og starfsfólki og öðrum viðstöddum boðinn sálrænn stuðningur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi vestra voru bæði hin slösuðu og ökumaðurinn Íslendingar á ferð um landið. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fyrsta forgangi þegar slysið varð. Svo varð ljóst að hægt var að koma sjúklingum með sjúkraflugi frá Sauðárkróki og þannig hraðar undir læknishendur. Þyrlan var því afturkölluð þegar fólkið var komið í sjúkraflugvélina. Lögreglan á Norðurlandi vestra rannsakar nú tildrög slyssins.

Go to News Site