Collector
Trump: „Kúba er næst“ | Collector
Trump: „Kúba er næst“
Fréttastofa RÚV

Trump: „Kúba er næst“

Bandaríkjaforseti segist ætla að beina sjónum að Kúbu þegar Bandaríkin hafa lokið aðgerðum í Íran. „Kúba verður næst. Kúba er hnignandi land og hún verður næst,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti við blaðamenn í gærkvöld. Hann útskýrði ekki nánar hvað hann ætti við en sagði að Bandaríkin myndu vera til staðar og vísaði til kúbverskra innflytjenda sem hefðu verið beittir harðræði undir stjórn Fidels Castro. Trump segist ekki ætla að hindra siglingu rússnesks olíuflutningaskips til Kúbu þrátt fyrir að hafa stöðvað allan olíuflutning þangað síðustu mánuði. Hann Engin olía í þrjá mánuði Olíuflutningaskipið Anatoly Kolodkin siglir skammt undan austurströnd Kúbu og gæti að óbreyttu komið til hafnar næsta sólarhringinn. Það yrði í fyrsta sinn í þrjá mánuði sem olía er flutt til Kúbu. 650.000 til 700.000 olíutunnur eru um borð, samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs. Rússneskt olíuskip nálgast austurströnd Kúbu. Bandaríkin hafa hindrað olíuflutning til Kúbu í þrjá mánuði. Bandaríkjaforseti segist ekki ætla að stöðva för skipsins en að þegar aðgerðum Bandaríkjanna í Íran sé lokið sé Kúba næst. Trump segist ekki hafa neitt á móti því að skipið komist til Kúbu. Hann sagði Kúbverja þurfa olíuna til að lifa af, hvort sem hún kæmi frá Rússum eða öðrum. „Ef ríki vill flytja olíu til Kúbu núna, þá hef ég ekkert á móti því. Hvort sem það er Rússland eða ekki.“ Aðspurður kvaðst hann ekki telja þetta hjálpa Vladimír Pútín Rússlandsforseta. „Hann tapar einum olíubát. Það er allt og sumt,“ sagði Trump. „Ef hann vill gera það og ef önnur lönd vilja gera það þá truflar það mig ekki. Þetta mun ekki hafa áhrif. Kúba er búin að vera. Þeir eru með slæmt stjórnkerfi og spillta stjórn.“ Bandaríkin hafa hindrað olíuflutning til Kúbu, annars vegar með því að stöðva flutning frá Venesúela eftir að hafa velt forseta Venesúela úr sessi , og hins vegar með því að hóta refsiaðgerðum. Það varð meðal annars til þess að Mexíkó, annar stærsti innflytjandi olíu til Kúbu, stöðvaði flutning þangað. Skipið gæti því verið mikilvæg líflína fyrir efnahag Kúbu, sem er svo gott sem staðnaður vegna olíuskorts. Þá hefur einnig borið á rafmagnsleysi. Forseti Kúbu segir orkukrísu hafa verið hrint af stað. Sameinuðu þjóðirnar hafa gagnrýnt aðgerðir Bandaríkjanna, sem þær segja hafa valdið mannúðarkrísu á Kúbu.

Go to News Site