Collector
Útlit fyrir gott færi á skíðasvæðum landsins um páskana | Collector
Útlit fyrir gott færi á skíðasvæðum landsins um páskana
Fréttastofa RÚV

Útlit fyrir gott færi á skíðasvæðum landsins um páskana

Dymbilvika er runnin upp og margir hafa það að venju að skella sér á skíði um páskana. „Spáin er bara eins og hún er og við tökum þetta bara dag frá degi. En þetta verða geggjaðir páskar,“ segir Einar Bjarnason, rekstrarstjóri í Bláfjöllum. Hann segir nægan snjó í brekkunum og því þurfi fólk ekki að óttast að Bláfjöll verði lokuð vegna snjóleysis. „Hann kom aðeins of seint en það er allt komið á kaf hjá okkur líka,“ segir Einar. „Ef að veðrið helst skikkanlegt og við fáum ekki endalausar rigningar, þá verður snjór hérna fram í maí. En það kemur enginn á skíði eftir apríl. Þá eru allir dottnir í reiðhjólin og golfið.“ Nánast of mikið af snjó í Oddskarði Á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli á Akureyri stefnir einnig í góða skíðapáska og skemmtiatriði verða flesta dagana í brekkunni. Brynjar Helgi Ásgeirsson segir að aðstæður hafi varla verið betri í vetur og að snjólög séu mjög góð. Skíðavikan á Ísafirði er hafin og stendur fram á annan í páskum. Sigurjón Egilsson, forstöðumaður í Oddskarði á milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, sagði að nægur snjór væri í hlíðunum og ef eitthvað væri nánast of mikið af honum. Því ætti hann snjó aflögu ef einhvern vantaði.

Go to News Site