Collector
Hótar að gjöreyða írönskum orkuinnviðum | Collector
Hótar að gjöreyða írönskum orkuinnviðum
Fréttastofa RÚV

Hótar að gjöreyða írönskum orkuinnviðum

Donald Trump Bandaríkjaforseti bætti í hótanir sínar gagnvart Írönum í dag og hótar nú að gjöreyða írönskum raforkuverum, olíulindum og Kharg-eyju, þaðan sem meirihluti íranskrar olíu er fluttur. Trump sagði Financial Times í gær að Bandaríkin gætu tekið yfir Kharg-eyju ef Íranir neituðu að opna fyrir flutning um Hormús-sund. Hann birti færslu á Truth Social í dag þar sem hann var töluvert harðorðari þrátt fyrir að virðast vongóður um árangur óbeinna viðræðna við Íran. „Mikill árangur hefur náðst en ef samkomulag næst ekki fljótlega, sem tekst þó að öllum líkindum, og Hormús-sund verður ekki opnað samstundis þá lýkur viðveru okkar í Íran með því að við sprengjum upp og gjöreyðum öllum raforkuverunum þeirra, olíulindum og Kharg-eyjum (og mögulega öllum afsöltunarstöðvum!), sem við höfum hingað til ekki „snert“. Þetta verður hefnd fyrir okkar mörgu hermenn, og aðra, sem Íranir hafa slátrað og drepið í 47 ára ógnartíð klerkastjórnarinnar.“ Ekki er ljóst hvort þetta breyti einhverju um þann frest sem Trump sagði Írani hafa til að opna Hormús-sund. Hann hefur breyst nokkrum sinnum og Trump sagst ætla að framlengja hann vegna framvindu viðræðna. Síðast gaf hann frest til 6. apríl. Donald Trump var harðorður þegar hann beindi spjótum sínum að Írönum á samfélagsmiðlum í dag. Hann hótaði að gjöreyða írönskum raforkuverum, olíulindum og Kharg-eyju, þaðan sem Íranir flytja meirihluta olíunnar.

Go to News Site