Fréttastofa RÚV
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakaði eigendur fósturheimilisins Gauksstaða í Garði fyrir meint brot á barnaverndarlögum. Rannsóknin hófst árið 2019 og var tekin skýrsla af fjölda fólks sem hafði búið á heimilinu sem börn. Til rannsóknar var hvort eigendur fósturheimilisins, Jón Steinar Konráðsson og Linda Angelique Elizondo, hefðu gerst brotlegir gegn barnaverndarlögum og brot í opinberu starfi. Þetta kemur fram í gögnum um rannsóknina sem Þetta helst hefur undir höndum og í öðrum heimildum. Rannsóknin hófst eftir að Barnaverndarstofa hafði sent kæru til lögreglunnar. Lögreglan lokaði fósturheimilinu eftir að rannsóknin hófst. Árið 2021 var rannsóknin felld niður á grundvelli skorts á sönnunargögnum. Einn af þeim sem gáfu vitnaskýrslu við rannsókn málsins er Aron Eiríksson. Hann bjó á heimilinu sem fósturbarn á árunum 2014 og 2015 þegar hann var fjórtán til fimmtán ára gamall. Aron segir að dvölin á fósturheimilinu hafi verið hreint helvíti og að honum hafi verið refsað með ýmiss konar hætti meðan hann bjó þar. Meðal annars var hann læstur inni í hænsnakofa og látinn sitja á stól tímunum saman. „Hún var hreinlega algjört helvíti. [...] Mjög mikið bara sálrænar pyndingar út í eitt,“ segir Aron. Jón Steinar Konráðsson vildi ekki veita þetta helsta viðtal um lögreglurannsóknina þegar eftir því var leitað. Hann sagðist ætla að hugsa málið. Fjallað er um lögreglurannsóknina á Gauksstöðum í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér: Lögreglan á Suðurnesjum rannsakaði fósturheimilið Gauksstaði í Garði í tvö ár frá 2019 til 2021. Maður sem dvaldi á heimilinu sem barn lýsir líkamlegu og andlegu ofbeldi sem hann varð fyrir. Rannsóknin var felld niður vegna skorts á sönnunargögnum. Lögmaðurinn gætti hagsmuna fjölda barna Lilja Margrét Ólsen er lögmaður fjölda fyrrverandi fósturbarna sem dvöldu á Gauksstöðum. Hún kom upphaflega að málinu af því að hún var skipuð réttargæslumaður Arons og fleiri barna. Hún segir að hún hafi gætt hagsmuna rúmlega 20 fósturbarna sem dvöldu á Gauksstöðum. Lilja segir að framburðir barnanna hafi verið afar trúverðugir af því þetta voru börn sem voru vistuð á heimilinu á löngu tímabili og þau þekktust ekki. „Þetta var mikið til andlegt ofbeldi, gagnvart flestum sem rætt var við, og í einhverjum tilfellum líkamlegt ofbeldi einnig. [...] Varðandi líkamlega ofbeldið þá [...] þá var eitt barnið látið dúsa úti í læstum kofa. Önnur var látin hlaupa á eftir bílnum þeirra af því að hún var að þeirra mati of vel í holdum og hún var vigtuð fyrir framan fólk. Það virðist vera að á heimilinu hafi ríkt ógnarstjórn, algjör.“ Lilja segir að hún skilji ekki af hverju rannsóknin hafi verið felld niður í ljósi þess hversu margir vitnisburðirnir voru. Hún segir að niðurstaða ákæruvaldsins hafi verið sú að eitthvað af hinum meintu brotum hafi verið fyrnd en einnig að málið hafi ekki þótt líklegt til sakfellingar. Aron Eiríksson vill að þetta fósturheimili verði rannsakað nú þegar til stendur að rannsaka fósturheimili hér á landi í kjölfar Bakkakotsmálsins. „Ég vil allan daginn að þetta verði rannsakað, þetta heimili. Ég vil að börnin sem voru þarna fái réttlæti og strákarnir í Bakkakotsmálinu, ég vil að þeir fái allt sitt réttlæti líka af því það á ekkert barn að þurfa að ganga í gegnum þetta.“ Barna- og fjölskyldustofa, sem áður hét Barnaverndarstofa, segir í svari til fréttastofu um Gauksstaði að stofnunin geti ekki tjáð sig um einstök mál.
Go to News Site