Collector
Óverulegt frávik fyrir 4 einkahús var látið gilda um 70 gistihús | Collector
Óverulegt frávik fyrir 4 einkahús var látið gilda um 70 gistihús
Fréttastofa RÚV

Óverulegt frávik fyrir 4 einkahús var látið gilda um 70 gistihús

Arctic Adventures, sem áformar 70 gistihús við Skaftafell, tjáði íbúum í Öræfum að til greina kæmi að breyta hönnun og hafa húsin einnar hæðar. Á íbúafundi var gagnrýnt að sérstakt skipulagsfrávik fyrir fjögur einkahús gildi um 70 gistihús án sérstakrar umfjöllunar. Áformin voru minnkuð en svo stækkuð aftur Upphaflega átti að byggja samtals 5200 fermetra á tveimur lóðum, Skaftafelli 3 og 4. Eftir mikil mótmæli var það minnkað í 35 hús á annarri lóðinni og samþykkt að það skyldi vera lágreist smáhýsi á einni hæð með svefnlofti og byggingarmagnið aðeins 1400 fermetrar. Við þetta fór fólk á svæðinu að beina athyglinni annað enda taldi það að björninn væri unninn. Það fór því fram hjá flestum þegar húsunum var fjölgað upp í 70 og þau hækkuð í tvær fullar hæðir. Nágrannar og fólk sem er umhugað um ásýnd svæðisins við Skaftafell og þjóðgarðinn gagnrýna nú mjög að ekki hafi verið kynnt sérstaklega þegar vegghæð húsanna var hækkuð. Húsin eru heldur ekki mænishús heldur mjög kassalaga með einhalla þaki og tveggja hæða. Byggingarmagnið rúmlega þrefaldaðist. Á íbúafundi í Öræfum fyrr í mánuðinum lýstu heimamenn áhyggjum af ásýndarbreytingu og mögulegum ruðningsáhrifum á þau fyrirtæki sem starfa á svæðinu. Fundargerð var birt á vef Hornafjarðar í síðustu viku og á fundinum komu fram ákveðnar skýringar á því hvers vegna breytingin á húsunum lenti undir radarnum eins og sagt er. Vegghæðarbreyting sem sótt var um og samþykkt fyrir fjögur frístundahús til einkanota var yfirfærð á gistihús fyrirtækis, án umfjöllunar og án þess að sótt hafi verið sérstaklega um þá breytingu. Frávikið hafði upphaflega verið afgreitt sem óverulegt enda húsin bara fjögur en breytingin er svo látin gilda um öll gistihúsin án umfjöllunar. Í skipulagstillögu var engin sérstök athygli vakin á þessu og hús sett í auglýsingu yfir jól eða frá 19. desember 2023 til 15. janúar 2024. Byggingarheimild gefin út en ekki byggingarleyfi Einnig kom fram að gefin var út byggingarheimild en ekki byggingarleyfi eins og venjan er með gistirými. Það þýddi að ekki þurfti að skila inn teikningum af því hvernig húsin myndu líta út endanlega. Íbúarnir hrukku svo við þegar húsin fóru að rísa. Á fundinum báðust sveitarstjórnarfulltrúar afsökunar takmarkaðri kynningu og á að hafa ekki skoðað málið betur sjálfir, samkvæmt upplýsingum fréttastofu, og kom sú afsökunarbeiðni frá fulltrúum Kex-framboðs og Framsóknar. Fulltrúi Arctic Adventures lýsti yfir vilja til að breyta hönnun og skoða einnar hæðar hús sem falli betur að landslaginu. Fulltrúar sveitarstjórnar töldu þó að málið stæðist stjórnsýslulög þar til annað kæmi í ljós, samkvæmt fundargerð sem skrifuð var eftir fundinn og birt á vef Hornafjarðar.

Go to News Site