Fréttastofa RÚV
Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá dómi stefnu Samkeppniseftirlitisins gegn Samskipum. Eftirlitið freistaði þess að fá hækkaða þá sekt sem Samskip og dótturfélög þess verða að greiða vegna ólöglegs samráðs við Eimskip. Samkeppniseftirlitið hafði lagt 4,2 milljarða sekt á skipafélagið en úrskurðarnefnd samkeppnismála lækkað hana í 2,3 milljarða. Lögmaður Samskipa krafðist frávísunar vegna umfangs stefnunnar. Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur sagði að stefna Samkeppniseftirlitsins væri óhóflega löng og án fordæma. Hún er 135 blaðsíður. Samkvæmt reglum dómstólasýslunnar um hámarkslengd stefna og greinargerða eiga þær að jafnaði ekki að vera lengri en um átta blaðsíður í almennum málum og 24 síður í algjörum undantekningatilvikum. Farið út fyrir öll mörk Í úrskurði sínum segir dómari að lýsing Samkeppniseftirlitsins á málsástæðum feli heilt á litið í sér óhóflegan skriflegan málflutning í brýnni andstöðu við bæði reglur dómstólasýslunnar og lög um meðferð einkamála. „Með þessu er ekki sagt að stefna í málinu gæti ekki verið lengri en almennt gengur og gerist, enda er um viðamikið mál að ræða, heldur að stefnandi hafi að þessu leyti farið út fyrir öll mörk.“ Hundruð skjala í sumum gögnum Dómari fann líka að umfangi skjala sem Samkeppniseftirlitið lagði fram. Stefnunni fylgja 44 skjöl sem eru í raun skjalapakkar því eitt dómskjalið virtist að sögn dómara innihalda 123 skjöl á 678 blaðsíðum og annað virtist fela í sér yfir 240 skjöl. Hann sagði einnig illa vísað til skjala í stefnu og sömu skjölin lögð ítrekað fram. „Allt er þetta verulega ámælisvert og gerir málatilbúnað stefnanda ógleggri en ástæða var til.“ Annað sem dómari gerði athugasemd við var hvernig vísað væri til manna í stefnunni. Þannig væri vísað til ýmissa nafna þeirra framan af en í málsástæðukafla væru bara notaðar skammstafanir þeirra. Þá vaknaði spurning um hvern væri átt við. Loks væri á einum stað að finna skammstöfun á nafni sem hvergi sé að finna í tilvísuðum skjölum. Stefnu Samkeppniseftirlitsins var vísað frá dómi og Samkeppniseftirlitið dæmt til að greiða Samskipum og dótturfélögum þess hálfa milljón króna í málskostnað.
Go to News Site