Collector
Þvingaði konu sína til vændisathafna með 120 körlum | Collector
Þvingaði konu sína til vændisathafna með 120 körlum
Fréttastofa RÚV

Þvingaði konu sína til vændisathafna með 120 körlum

Sænsk yfirvöld hafa ákært mann sem er grunaður um að þvinga eiginkonu sína til kynlífsathafna með yfir 120 karlmönnum. Hann er ákærður fyrir stórfellda vændissölu, átta nauðganir og líkamsárás. SVT greinir frá. Brotin eru sögð hafa verið framin yfir rúmlega þriggja ára tímabil, frá 2022 til 2025. Hann gæti átt yfir höfði sér tveggja til tíu ára fangelsisdóm. Hann neitar sök. Maðurinn er 62 ára og var handtekinn í október í kjölfar þess að eiginkona hans leitaði til lögreglunnar í norðanverðri Svíþjóð. Hann hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan. 26 aðrir eru einnig ákærðir í málinu. Eftirlit, hótanir og ofbeldi Samkvæmt dómsskjölum þrýsti maðurinn á eiginkonu sína að framkvæma eða samþykkja kynlífsathafnir. Hann er sagður hafa fylgst með henni í gegnum eftirlitsmyndavélar, byrlað henni og síðar notfært sér fíkn hennar. Maðurinn er sakaður um að beita konuna ofbeldi, hóta henni og ógna. Í dómsskjölum segir að hann hafi hótað að drepa hana, hella bensíni yfir hana, brenna hana og skera af henni fingur. Hann er einnig sagður hafa kallað sjálfan sig „skrímslið“ þegar hann ógnaði konunni. Saksóknari segir manninn hafa þaulskipulagt athæfið; til að mynda birt auglýsingar á netinu og skipulagt fundi með mönnunum. Milljónaskuld til ríkis og kröfuhafa Sænska ríkissjónvarpið hermir að maðurinn hafi átt stuttan feril í sænska hernum og tilheyrt samtökunum Vítisenglum í Svíþjóð í um tvo áratugi. Hann hefur verið dreginn fyrir dóm í tengslum við rekstur nokkurra fyrirtækja síðustu ár. Samkvæmt SVT skuldar hann jafnvirði rúmlega 180 milljóna íslenskra króna til ríkis og kröfuhafa.

Go to News Site