Collector
Nýju verkefni ætlað að létta álagi af Landspítalanum | Collector
Nýju verkefni ætlað að létta álagi af Landspítalanum
Fréttastofa RÚV

Nýju verkefni ætlað að létta álagi af Landspítalanum

Gunnlaugur Briem, formaður félags sjúkraþjálfara, segir nýju framtaki sjúkraþjálfara á bráðamóttöku og Landspítala ætlað að stytta biðtíma og draga úr álagi á bráðamóttökunni. Gunnlaugur segir brýnt að leita ólíkra lausna til að létta á álaginu í heilbrigðiskerfinu. Verkefnið er unnið af sjúkraþjálfurum á bráðamóttöku og tengdum deildum Landspítala, í samstarfi við sjúkraþjálfara á stofum. Það miðar að því að fækka ónauðsynlegum innlögnum og auðvelda útskriftir tiltekinna sjúklingahópa. Vilja stytta biðtíma með sértækum forgangi Að sögn Gunnlaugs hafa fjölmargar sjúkraþjálfunarstofur þegar lýst yfir þátttöku og undirbúningur er kominn vel af stað. „Með þessu verkefni erum við í raun og veru að búa til sértækan forgang fyrir ákveðna hópa af þjónustu og stytta þá verulega biðtíma og koma á formlegum vettvangi á milli Landspítalans og sjúkraþjálfunarstofanna til að halda utan um þetta ferli,“ segir Gunnlaugur. Hvað skjólstæðingahópa varðar segir hann að horft sé til einstaklinga sem leiti á bráðamóttökuna og til þeirra sem liggi á tengdum deildum sem hafi áhrif á álagið. Til dæmis henti verkefnið til þess að sinna einstaklingum sem eru í hættu á að þurfa innlagnir sem og þeim sem gætu verið í hættu á ítrekuðum endurkomum á bráðamóttökuna. „Við erum að gera ráð fyrir því að þetta gæti verið einhvers staðar á bilinu 30-40 einstaklingar á mánuði og eins og við sjáum þá er það auðvitað heilmikill fjöldi en mögulega er hægt að tryggja þjónustu fyrr og létta á álaginu. Því að nógu stórt er vandamálið, bæði varðandi álagið á bráðamóttökunni og líka samhliða þessari uppbyggingu á hjúkrunarheimilum. Við verðum líka að horfa til fleiri lausna.“ Verkefninu hrint af stað í apríl Gunnlaugur áréttar að hugmyndafræðin að baki verkefninu sé ekki sú að fólk telji sig geta tryggt sér forgang fram hjá biðlistum með því að fara beint á bráðamóttökuna. Það sé hlutverk lækna og sjúkraþjálfara að meta, flokka og greina eðli vandamála þeirra sem þangað komi. Markmiðið sé heldur að ná til sértækra hópa og draga þannig úr álagi á heilbrigðiskerfið. Verkefninu er ætlað að hefjast í apríl og segir Gunnlaugur að ekki sé eftir neinu að bíða. Einhvers staðar þurfi að byrja og síðan muni verkefnið þróast með tímanum. „Þetta er spennandi verkefni og þetta er í rauninni að frumkvæði sjúkraþjálfara á Landspítalanum sem hafa samband við okkur í félaginu. Við héldum upplýsingafund með félagsfólki í kjölfarið og það voru mjög góðar undirtektir þannig að við ákváðum bara að ýta þessu verkefni úr vör og setja það á fulla ferð.

Go to News Site