Collector
Telur flesta Sýrlendinga vilja snúa heim | Collector
Telur flesta Sýrlendinga vilja snúa heim
Fréttastofa RÚV

Telur flesta Sýrlendinga vilja snúa heim

Friedrich Merz kanslari Þýskalands vill greiða fyrir því að sýrlenskir flóttamenn sem búsettir eru í Þýskalandi geti snúið aftur til Sýrlands. Til þess að svo megi verða þurfi að koma upp áreiðanlegu kerfi og samvinnu við Sýrland. Þetta sagði Merz á sameiginlegum blaðamannafundi hans og Ahmed al-Sharaa forseta Sýrlands í Berlín í dag. Alls leitaði um ein milljón Sýrlendinga skjóls í Þýskalandi á síðustu árum. Merz kveðst vita að meirihluti þeirra vilji snúa aftur heim til að taka þátt í endurreisninni að loknu stríði; búa við öryggi, frelsi og reisn. Telur aðstæður orðnar betri í Sýrlandi Aðstæður í Sýrlandi hafa batnað að mörgu leyti frá því borgarastyrjöldinni í landinu lauk fyrir rúmu ári, segir Merz. Þar af leiðandi þurfi að endurskoða alþjóðlega vernd. Merz hrósaði sýrlensku fagfólki sem hafi lagað sig vel að þýsku samfélagi. Ef það vilji snúa aftur til Sýrlands þá hafi það dýrmæta reynslu í farteskinu sem komi sér vel í uppbyggingunni fram undan. Þýsk yfirvöld hyggjast taka þátt í uppbyggingunni í samstarfi við stjórnvöld í Sýrlandi og veita í það verkefni yfir 200 milljónum evra á þessu ári, segir Merz. Ahmed al-Sharaa, forseti Sýrlands, þakkaði þýsku þjóðinni fyrir að taka á móti Sýrlendingum á flótta. Hann kvaðst stoltur af því hversu margir Sýrlendingar hefðu fundið sér starf í Þýskalandi. Samstarf ríkjanna miði að því að Sýrlendingar geti snúið aftur heim vilji þeir það en þeir sem vilji verða áfram í Þýskalandi geti gert það. Eftir áratuga kúgun þar sem fólk lifði í ótta þurfi góða stjórnarskrá sem tryggi mannlega reisn, segir al-Sharaa. Fyrsta opinbera heimsóknin til Þýskalands Sharaa hefur ferðast víða um heim frá því hann tók við embætti fyrir tveimur árum og byggt upp sambönd við stjórnvöld á Vesturlöndum. Þessi sambönd hafa orðið til þess að ýmsum viðskiptahindrunum sem voru á Sýrlandi og sýrlenskum borgurum hefur verið aflétt til þess að aðstoða sýrlenska ríkið við uppbyggingu eftir fjórtán ára blóðuga borgarastyrjöld. Hvergi í Evrópusambandinu búa jafn margir Sýrlendingar og í Þýskalandi. „Þetta eru Sýrlendingar sem fengu menntun í þýskum háskólum, náðu sér í reynslu í Þýskalandi og vinna nú hjá þýskum fyrirtækjum. Í gegnum fjárfestingar í Sýrlandi geta þeir komið með þessa þekkingu til baka til Sýrlands.“

Go to News Site