Collector
Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið í Varmahlíð | Collector
Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið í Varmahlíð
Fréttastofa RÚV

Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið í Varmahlíð

Drengur á fjórða ári er á gjörgæsludeild Landspítalans eftir umferðarslysið sem varð við söluskála Olís í Varmahlíð í gær. Móðir drengsins er undir eftirliti lækna. Þau voru á gangstétt fyrir utan söluskálann þegar slysið varð. Þau voru flutt með sjúkrabíl á Sauðárkrók og þaðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Mörg vitni voru að slysinu. Söluskálanum var lokað, áfallateymi kallað á staðinn og starfsfólki og öðrum viðstöddum boðinn sálrænn stuðningur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi vestra voru bæði þau slösuðu og ökumaðurinn Íslendingar á ferð um landið. Í tilkynningu lögreglu síðdegis segir að rannsókn sé fram haldið af lögreglu og rannsóknarnefnd samgönguslysa.

Go to News Site