Fréttastofa RÚV
Grímseyjarferjan Sæfari sigldi í dag í fyrsta sinn frá því 16. janúar. Ferjan hefur verið í slipp og engar áætlunarsiglingar verið til eyjarinnar í rúma tvo mánuði. Sæfari var sendur í reglubundið viðhald og viðgerðir 19. janúar, er fram kom í tilkynningu frá Akureyrarbæ. Verkið átti að taka þrjár vikur, en í dag, tíu vikum seinna komst Sæfari loks á siglingu á ný. Grímseyingar eru vitanlega ekki kátir með tafirnar og segja rekstur Vegagerðarinnar á ferjunni hafa verið bagalegan. Á meðan Sæfari var í slipp var Grímseyingum sagt að fara með flugi, en eins og veður og vindar hafa verið á landinu undanfarið hefur það ekki verið hægt. Fólk hefur því hvorki komist til né frá Grímsey í langan tíma. Viðgerðirnar höfðu ekki bara áhrif á Grímseyinga heldur einnig Hríseyinga þar sem Sæfari flytur til þeirra frakt tvisvar í viku. Eyjaskeggjar hafa ítrekað látið í sér heyra síðustu ár og segjast langþreyttir, eftir tíðar bilanir á ferju sem þeir segja gamla og úr sér gengna.
Go to News Site