Collector
Hækkandi álverð á heimsvísu ekki endilega góð tíðindi | Collector
Hækkandi álverð á heimsvísu ekki endilega góð tíðindi
Fréttastofa RÚV

Hækkandi álverð á heimsvísu ekki endilega góð tíðindi

Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins, segir að þrátt fyrir að verð á áli fari hækkandi og að eftirspurn aukist sé ólíklegt að það hafi jákvæð áhrif á álframleiðslu hér á landi til lengri tíma. Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað hækkað um 5% eftir að Íran gerði árásir á álver í Abu Dhabi, í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og í Bahrein. Um 9% af áli heimsins er framleitt í Mið-Austurlöndum. „Ég held að það hafi aldrei gerst að stríðsátök hafi haft jákvæð áhrif á þennan iðnað,“ segir Sigríður. Átökum fylgi iðulega mikil óvissa sem hafi slæm áhrif á markaði. Einnig sé ekki svo einfalt að auka framleiðslu hratt til að bregðast við aukinni eftirspurn. Sem dæmi má þá nefna að ekki er gert ráð fyrir að álver Norðuráls á Grundartanga verði komið í full afköst fyrr en í júlí. Verð á olíu og aðföngum hækkar einnig „Það má í rauninni segja að heilt yfir þegar það brjótast út stríðsátök, sama hvar það er, þá er það fyrsta sem gerist er að óvissustig eykst,“ segir Sigríður. „Heimurinn er auðvitað mjög tengdur í gegnum aðfangakeðjur, framleiðslu á hrávörum og öðru,“ segir Sigríður. Þrátt fyrir að verð hafi hækkað í dag segir Sigríður að talsverðar sveiflur séu á álverði. „Það fer jafnvel svolítið eftir því hvenær þú skoðar verðið yfir daginn,“ segir hún. Á sama tíma verði að hafa í huga að í stríðsástandi hækki flutningskostnaður mikið og verð á olíu og aðfangakostnaður verði meiri. „Þannig að við erum alls ekki að sjá þetta í jákvæðu ljósi,“ segir Sigríður. Eftirspurn umfram framboð Ásamt þessu sé framleiðsla hér á landi háð mörgum breytum og því ekki einfalt að bregðast við aukinni eftirspurn með meiri framleiðslu.  „Við erum að gera ráð fyrir að aðföng hækki í verði. Það eru þá líka aðföng sem íslenskir framleiðendur eru að nota,“ segir Sigríður. „Raforkuverð hefur hækkað, launakostnaður er mjög hár og almennt er framleiðslukostnaður mjög hár á Íslandi,“ segir hún. Engu að síður sé pöntunarstaða hjá framleiðendum hér á landi tiltölulega góð samkvæmt upplýsingum Samtaka iðnaðarins. „Það má alveg gera ráð fyrir aukinni eftirspurn en það er þá aðallega eftirspurn umfram framboð,“ segir Sigríður. „Það er ákveðin gjá á milli framboðs og eftirspurnar sem hefur jákvæð áhrif til skamms tíma en ég ítreka að framleiðslukostnaður mun að öllum líkindum hækka, jafnvel frekar skart.“

Go to News Site