Collector
100 kílómetra hlaup Arnars næsthraðast í heimi | Collector
100 kílómetra hlaup Arnars næsthraðast í heimi
Fréttastofa RÚV

100 kílómetra hlaup Arnars næsthraðast í heimi

Hlauparinn Arnar Pétursson gerði vel um helgina þegar hann stórbætti Íslandsmet sitt í 100 kílómetra hlaupi á móti í Koper í Slóveníu. Tími Arnars er einn sá besti í heimi í greininni á þessu tímabili. Arnar kom í mark í Slóveníu á 6 klukkutímum og 24,53 mínútum sem er bæting um rúmar 20 mínútur. Fyrra Íslandsmet Arnars var 6 klukkutímar og 45,16 mínútur, sett á Íslandsmótinu í 100 kílómetra hlaupi í fyrra. Hlauparinn Arnar Pétursson bætti um helgina Íslandsmet sitt í 100 kílómetra hlaupi. Tími Arnars er næsthraðasti tími í greininni í ár. Tími Arnars er næsthraðasti tíminn í greinni í ár en aðeins Svisslendingurinn Pascal Rüeger hefur hlaupið hraðar en sá á best 6 klukkutíma og 18,27 mínútur. Tími Arnars er sömuleiðis fimmti besti tími sem náðst hefur í heiminum á síðustu tveimur árum. Afrekið er næst stigahæsta afrek Íslendings í götuhlaupi frá upphafi en aðeins Baldvin Þór Magnússon hefur fengið fleiri stig fyrir hlaup, þegar hann setti Íslandsmetið í 10 kílómetra götuhlaupi í janúar.

Go to News Site