Fréttastofa RÚV
Síðasta virkni í farsíma portúgalsks manns sem fannst látinn í heimahúsi á Kársnesi í nóvember varð rúmum hálftíma áður en maðurinn sem er ákærður fyrir að bana honum fór af vettvangi. Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðsdóms Reykjaness frá 25. mars. Maðurinn er grískur og var ákæra yfir honum þingfest fyrr í dag. Til stendur að aðalmeðferð í málinu hefjist 6. maí og verði framhaldið föstudaginn 8. maí. Ákærða er gert að sök að hafa stungið manninn þrisvar sinnum í kviðinn með hníf, skorið hann, stungið með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann með þeim afleiðingum að hann lést. Ákærði neitar sök. Í gæsluvarðhaldsúrskurðinum kemur fram að staðsetningargögn sýni að maðurinn hafi verið heima hjá þeim látna á milli klukkan 19:44 og 20:58 þann 28. nóvember. Hann hafði gert boð á undan sér stuttu áður en hann kom, klukkan 19:18, í gegnum samskiptaforritið Signal. Maðurinn sagðist hafa neytt kókaíns og spilað fjárhættuspil á heimili félaga síns. Eftir að hann yfirgaf heimilið fór hann heim til sín í um 22 mínútur, milli klukkan 21:04 og 21:26. Þá fór hann að sundlaug þar sem hann sat í bíl sínum. Maðurinn sagði við lögreglu að hann hefði hlustað á tónlist og spilað póker í síma sínum en í úrskurði stendur að rannsókn á símanum hafi sýnt að engin virkni hafi verið í farsímanum meðan bílnum var lagt. Skipti um föt og fór í Sorpu Þá hélt maðurinn í Sorpu þar sem hann sást á öryggismyndavél klukkan 23:43 að athafna sig við gám. Þar var hann komin í önnur föt og aðra skó og með vettling á hægri hönd. Á upptöku frá Sorpu frá 29. nóvember sést að maðurinn var kominn með sáraumbúðir á fingur hægri handar. „Að mati réttarlæknis var varnaraðili með áverka sem benda til að hafa komið til fyrir skarpan kraft í formi snertingar við egg,“ segir í úrskurðinum. Maðurinn sagðist hafa meiðst þegar köttur klóraði hann og eftir að barn hans meðhöndlaði hníf tveimur vikum áður. Mat læknis var að umfang, fjöldi og útlit áverkanna talaði gegn þeim skýringum. Í síma mannsins voru fréttir um rannsókn lögreglu á málinu opnaðar tólf sinnum dagana 30. nóvember og 1. desember. Sjálfur sagðist hann þó hafa heyrt af andláti félaga síns 2. desember þegar vinkona hans hringdi í hann og tilkynnti honum það. Blóðsýni á útidyrahurð Niðurstaða DNA-rannsóknar leiddi í ljós að erfðaefni hins látna og hins ákærða væri að finna á hnífsblaði og skefti hnífs. Maðurinn hélt fram í skýrslutöku að þegar hann yfirgaf heimili hins látna hafi ekki verið blóð neins staðar. Niðurstöður DNA greiningar leiddu í ljós að snið hans fannst í 24 sýnum af þeim sem send voru til rannsóknar. Voru blóðsýnin á víð og dreif um íbúðina, þar á meðal á hurðarhúni útidyrahurðar. Á vettvangi fundust tvö mismunandi skóför. Á leiðinni til hins látna var maðurinn, samkvæmt myndbandsupptöku, í hvítum Nike skóm. Þeir fundust ekki við húsleit og hann sagði í skýrslu að hann hefði hent þeim í Sorpu daginn eftir lát mannsins. „Rannsókn af skósólum Nike skónna leiddi í ljós að skóafþrykk féll að miklu leyti saman við mynstur hins skófarsins sem fannst á vettvangi, þar á meðal á baðmottunni, á blóðugu gólfinu og á pizzakassa,“ segir í gæsluvarðhaldsúrskurði.
Go to News Site