Collector
Solaris stefnir formanni Sjálfstæðisflokksins fyrir meiðyrði | Collector
Solaris stefnir formanni Sjálfstæðisflokksins fyrir meiðyrði
Fréttastofa RÚV

Solaris stefnir formanni Sjálfstæðisflokksins fyrir meiðyrði

Hjálparsamtökin Solaris hafa stefnt Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Sjálfstæðisflokksins, fyrir meiðyrði. Samkvæmt stefnunni er þess krafist að þrjú ummæli hennar í Spursmálum frá 28. nóvember í fyrra verði dæmd dauð og ómerk, að hún greiði 4 milljónir í miskabætur og birti opinbera afsökunarbeiðni. Guðrún Hafsteinsdóttir greinir frá þessu á Facebook . Ummælin sem um ræðir lét hún falla í þætti Spursmála á mbl.is þar sem rætt var um aðgerðir Solaris þegar samtökin fóru til Egyptalands og sóttu fólk, sem hafði fengið samþykkta fjölskyldusameiningu á Íslandi, yfir landamærin að Gaza-ströndinni. ... hvað þá heldur þegar einstaklingar hér í samfélaginu voru að fara að landamærunum í Egyptalandi, til þess að ná fólki út sem enginn vissi deili á ... en það gengur náttúrulega alls ekki að hér sé eitthvað, einhver samtök sem kalla sig frjáls félagasamtök, að þau séu einhvern veginn með mútugreiðslum og öðru að taka fólk yfir landamærin sem eru lokuð og koma því fólki hér inn í landið, það gengur engan veginn. Jah, ég ætla að leiða að því líkum að þegar að fólk er hér með einhverjar safnanir í gangi og fer með peninga út og er að greiða fyrir ákveðna þjónustu eins og einhverjir sagði, á einhverri skrifstofu í Kaíró, eða hvar sem það nú var, að fyrir hvað ertu að borga, uuu, mjög háar fjárhæðir? Einar S. Hálfdánarson hæstaréttarlögmaður kærði Semu Erlu Serdaroglu, stofnanda og formann Solaris, og Maríu Lilju Þrastardóttur, sem kom að aðgerðum Solaris, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir mútugreiðslur. Lögreglan hætti rannsókn en ríkislögreglustjóri fór fram á að rannsóknin yrði kláruð. Guðrún segir í færslunni samtökin vilhi hefta tjáningarfrelsi hennar og að hún muni taka til varna í málinu, með þjóðarhagsmuni að leiðarljósi.

Go to News Site