Collector
Fermingarbörnum fjölgar á ný | Collector
Fermingarbörnum fjölgar á ný
Fréttastofa RÚV

Fermingarbörnum fjölgar á ný

Þeim fer fjölgandi á ný sem kjósa að fermast í kirkju og áhugi á kristinni trú virðist fara vaxandi meðal unglinga. „Bæði hér í Neskirkju og í öðrum kirkjum höfum við fundið fyrir vaxandi þátttöku og áhuga á því að fermast,“ segir Jón Ómar Gunnarsson, prestur í Neskirkju. Samfélagsmiðlar virðast hafa eitthvað að segja í auknum áhuga á kristinni trú. „Þau eru t.d. að velja sér fermingarvers og þá hef ég tekið eftir að þau koma með ensku útgáfuna því að þau hafa séð hana á TikTok hjá einhverjum áhrifavaldi,“ segir Jón Ómar. Sara Björg Brynjarsdóttir og Ísafold Arna Hafberg fermast í Lágafellskirkju í næstu viku og hlakka mikið til. „Ég trúi á Guð og mig langar að staðfesta skírnina mína,“ segir Ísafold. Báðum finnst fermingin og fermingarfræðslan mikilvæg.

Go to News Site