Fréttastofa RÚV
Áttunda umferð mótsins var í dag og jafnframt sú næstsíðasta því mótinu lýkur á morgun. Mikil athygli var á viðureign íranska Amin Tabatabaei og enska Matthew Wadsworth því þeir verma toppsætin. Tabatabaei var efstur og hafði unnið allar sínar sjö skákir fyrir viðureignina. Sæti neðar var Wadsworth, einum vinningi á eftir þeim íranska. Tabatabaei hafði möguleika á því að klára mótið með fullt hús stiga, afrek sem engum hefur tekist hingað til. Það er þó óhætt að segja að kapparnir hafi verið stál í stál og að loknum spennandi leik skildu þeir jafnir. Tabatabaei nær því ekki fullu húsi en heldur þó toppsætinu fyrir lokaumferðina á morgun og enn er Wadsworth einum vinningi frá ásamt fjórum öðrum skákmönnum. Dagur tekur forystuna meðal Íslendinga Sá Íslendingur sem er fremstur er Dagur Ragnarsson með sex vinninga í 20. sæti. Dagur mætti Alisher Suleymenov, stórmeistara frá Kasakstan í dag og bar sigur úr býtum. Dagur er alþjóðlegur meistari með 2376 elo stig og Suleymenov með 2523. Vignir Vatnar Stefánsson vann sína viðureign við spænska Miguel Ruiz og er nú í 33. sæti með 5,5 vinninga líkt og Guðmundur Kjartansson sem er sæti ofar. Lokaumferð mótsins er á morgun.
Go to News Site