Collector
FH sendi Íslandsmeistarana í sumarfrí | Collector
FH sendi Íslandsmeistarana í sumarfrí
Fréttastofa RÚV

FH sendi Íslandsmeistarana í sumarfrí

FH heimsótti Fram í Úlfarsárdal í öðrum leik liðanna í úrslitakeppninni. FH vann fyrsta leikinn og leiddi því 1-0. Jafnt var í stöðunni 5-5 en þaðan náðu gestirnir þriggja marka forskoti. Munurinn var sá sami þegar hálfleiksflautið gall, FH leiddi 11-14. Hafnfirðingar héldu þessu forskoti fyrstu mínútur síðari hálfleiks en á 44. mínútu minnkaði Eiður Rafn Valsson muninn niður í eitt mark, 20-21. FH hafði svör við því og liðið jók forystuna í sex mörk með marki frá Birgi Má Birgissyni á 57. mínútu. Jón Þórarinn Þorsteinsson, markvörður FH, skoraði svo síðasta mark leiksins þegar hann innsiglaði góðan leik Hafnfirðinga sem lauk með sex marka sigri, 27-33. FH hefur því sigrað einvígið við ríkjandi Íslandsmeistara Fram og er á leið í undanúrslit. Afturelding nældi í oddaleik Afturelding og Haukar mættust í Mosfellsbæ fyrr í kvöld þar sem heimamenn höfðu betur, 26-22. Staðan í því einvígi er því 1-1 og liðin mætast í oddaeinvígi á Ásvöllum á fimmtudag.

Go to News Site