Fréttastofa RÚV
Það hefur ekki verið skólastarf í Grindavík frá því að bærinn var rýmdur 2023. Talsverðar skemmdir urðu á skólanum. „Hér voru skemmdirnar þess eðlis að þetta þrýstist svolítið saman. En hér höfum við skipt um gólfefni; það er búið að leggja nýja gólfdúka og steypa upp í skemmdir sem voru á veggjum og mála. Svo það er mikill munur að koma hérna inn og það er í rauninni munur í hverri viku sko,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur þegar hún gengur um ganga skólans. Stefnt er að því að bjóða upp á leikskólapláss frá tólf mánaða aldri. Ásrún segir mikilvægt að það séu hvatar fyrir fólk til að snúa aftur, einnig verði hugað að tómstundum barna samhliða skólastarfi. „Við finnum vel fyrir því að Grindvíkingar eru með heimþrá og margir vilja komast heim aftur. Við tókum þá ákvörðun í bæjarstjórn að auglýsa eftir skólastjóra fyrir samrekinn leik- og grunnskóla og gerum ráð fyrir því að í þessum mánuði verði ráðið í þá stöðu,“ segir hún. „Leggjum fyrst og fremst áherslu á öryggi þeirra sem hér eru“ Grindavíkurbær auglýsti forskráningu í skólann fyrr á árinu til að kanna eftirspurn. Óvissa í húsnæðismálum gerir það að verkum að ekki allir gátu svarað með vissu. „Ætli það hafi ekki verið í kringum 80 börn sem voru skráð alveg frá leikskóla og upp á unglingastig. En sumir svöruðu að þau væru alveg viss um að óska eftir skólavist fyrir börnin sín, aðrir voru líklegir og svo voru sumir sem gátu ekki svarað,“ segir hún. Er einhver hræðsla í fólki að koma aftur með börn? „Við leggjum fyrst og fremst áherslu á öryggi þeirra sem hér eru og við erum að vinna í því að gera bæinn öruggari,“ segir hún. Ekkert skólastarf hefur verið í bænum síðan hann var rýmdur í lok árs 2023. „Það er ekkert samfélag án barna. Ég hef starfað sem kennari og stjórnandi hér í vel yfir 20 ár, svo þetta er mikið hjartans mál fyrir mig. Hér var vissulega mjög faglegt skólastarf og við stefnum á það aftur,“ segir Ásrún. Um áttatíu börn hafa verið forskráð í í leik- og grunnskóla í Grindavík næsta haust, þegar skólastarf hefst þar aftur eftir þriggja ára hlé. Undanfarið hefur verið unnið að því að lagfæra skemmdir á skólanum.
Go to News Site