Fréttastofa RÚV
Ræst var í sprettgöngunni í morgun og vel viðraði á Ólafsfirði. Kristrún Guðnadóttir og Dagur Benediktsson, sem bæði kepptu í skíðagöngu á Ólympíuleikunum á Ítalíu í vetur, voru áfram í broddi fylkingar. Dagur kom í mark á tveimur mínútum og 29,48 sekúndum, rúmum sjö sekúndum á undan næsta - Snorri Einarsson varð annar. Kristrún hafði yfirburði í kvennaflokki en hún kom í mark á þremur mínútum og 4,31 sekúndu. Bæði unnu þau gullið, hvor í sínum flokki en unnu einnig liðasprettinn. Dagur með Grétari Smára Samúelssyni og Kristrún með Maríu Kristínu Ólafsdóttur. Dagur og Kristrún eru því bæði fjórfaldir Íslandsmeistarar eftir mótið. Góður endir á erfiðu tímabili „Þetta er skemmtilegur endir á erfiðu tímabili. Þetta byrjaði svolítið illa, ég var meidd í fyrra og var lengi að koma mér í gang. Ég er á uppleið núna og örugglega í mínu besta formi á tímabilinu núna þannig þetta er mjög sætt,“ sagði Kristrún eftir mótið. Markmiðið að taka fjóra enn eina ferðina Dagur segist hafa tekið daginn taktískt enda tvær keppnir á dagskrá og því gott að huga að orkunni. Taktíkin virðist hafa gengið vel hjá honum því hann fagnaði titli í báðum greinum. Þá náði hann einnig sínu markmiði á mótinu. „Þetta var stóra markmiðið. Það eru komin þrjú ár í röð þar sem ég tek alla fjóra. Þetta er mjög sætt að ná þessu.“ Íslandsmótinu í skíðagöngu lauk í dag og lokagreinin var sprettganga. Enn voru ólympíufararnir í fararbroddi. Kristrún Guðnadóttir og Dagur Benediktsson urðu fjórfaldir Íslandsmeistarar.
Go to News Site