Fréttastofa RÚV
Ísraelsk stjórnvöld hafa samþykkt frumvarp að lögum sem heimila dauðarefsingu yfir palestínskum föngum sem dæmdir hafa verið fyrir hryðjuverk. 62 þingmenn ísraelska þingsins, þar á meðal Benjamin Netanyahu, greiddu atkvæði með frumvarpinu en 48 þingmenn á móti. Frumvarpið er umdeilt og hefur ákvörðunin um samþykki þess þegar verið kærð til dómstóla. Frumvarpið myndi gera dauðarefsingu að sjálfgefinni refsingu fyrir Palestínumenn á hernumda Vesturbakkanum sem eru fundnir sekir um að hafa af ásettu ráði framið mannskæðar árásir sem ísraelskir dómstólar flokka sem hryðjuverk. Mál Palestínumanna á Vesturbakkanum eru sjálfkrafa tekin fyrir af ísraelskum herdómstólum. Í frumvarpinu segir að við sérstakar aðstæður megi milda dóminn í lífstíðardóm. Frumvarpið kveður á um að aftökuaðferðin skuli vera henging og að hún skuli fara fram innan 90 daga frá dómsuppkvaðningu. Frumvarpið var baráttumál Itamars Ben-Gvir, þjóðaröryggisráðherra Ísraels. Ben-Gvir er leiðtogi stjórnmálaflokks á jaðarhægrikanti ísraleskra stjórnmála. Bandaríkin styðja frumvarpið en aðrar þjóðir gagnrýna það Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa lýst yfir stuðningi við frumvarpið. Upplýsingafulltrúi bandaríska utanríkisráðuneytisins sagði í kvöld að Bandaríkin virði rétt Ísraels til að ákveða sín eigin lög og refsingar gegn einstaklingum sem verða dæmdir fyrir hryðjuverk. Ýmis mannréttindasamtök og nokkrar Evrópuþjóðir hafa gagnrýnt frumvarpið. Stjórnvöld í Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi og Ítalíu hafa áhyggjur af því að frumvarpið grafi undan skuldbindingum Ísraels við lýðræðisleg grundvallaratriði.
Go to News Site