Fréttastofa RÚV
Forsvarsmenn samtaka á vinnumarkaði virðast samhljóma um að taka þurfi höndum saman um að ná niður verðbólgu, í anda þjóðarsáttarinnar 1990. Þá sameinuðust verkalýðsfélög, atvinnurekendur og ríkisvaldið um að ná niður þrálátri verðbólgu. Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, lýsir verulegum áhyggjum af auknu atvinnuleysi og háum stýrivöxtum. „Við höfum kallað eftir því að það verði gerð, hvort sem það heiti þjóðarsátt eða annað, að það eigi að mynda breiða samfylkingu til að reyna að vinna að því að ná þessu niður. Við erum búin að kalla eftir þessari vinnu í nokkurn tíma núna.“ Þetta sagði Finnbjörn í samtali við fréttastofu í morgun. Í Silfrinu í gær hvatti Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, til þess að velt væri upp leiðum til að ná niður verðbólgu. Hann vísaði sérstaklega til þjóðarsáttarsamninganna 1990. Finnbjörn segir að ekki sé farið að ræða sérstakar aðgerðir. „Við þurfum að þátta niður hverjir það eru sem hafa verið að kynda undir þessari verðbólgu sem er núna til staðar og hverjir hafa orðið hvað verst fyrir þessum vöxtum og þeirri dýrtíð sem hefur skapast út af þessu. Þegar við erum búin að því þá förum við að skoða til hvaða ráða við grípum.“ Hann segir að traust þurfi að ríkja til að hægt sé að ráðast í aðgerðir. „Þannig að þeir aðilar sem hafa verið að leggja til verðbólgunnar verða að finna til sinnar ábyrgðar líka.“ Slíkir samningar krefðust væntanlega aðkomu stéttarfélaga, atvinnulífsins og stjórnvalda. „Aðkoma frá ríkinu yrði í því að verja þá sem verst hafa farið út og reyna að styrkja þeirra grundvöll, eins og til dæmis með barnabótum, vaxtabótum og öðru þess háttar.“
Go to News Site