Collector
Sendir úr landi innan við sólarhring eftir handtöku | Collector
Sendir úr landi innan við sólarhring eftir handtöku
Fréttastofa RÚV

Sendir úr landi innan við sólarhring eftir handtöku

Þrír erlendir ríkisborgarar voru handteknir fyrir þjófnað eftir hádegi í gær og hafa þegar verið sendir úr landi. Í tilkynningu frá lögreglu segir að þrír karlmenn á þrítugsaldri hafi verið handteknir eftir að tilkynnt var um þjófnað á höfuðborgarsvæðinu. Mennirnir voru fluttir á lögreglustöð og yfirheyrðir. Þeir játuðu að hafa stolið fatnaði. Þýfinu hefur verið komið aftur í hendur eigenda. Mennirnir voru hér á landi í nokkra daga áður en þeir voru handteknir. Þeim var vísað úr landi á grundvelli útlendingalaga og þeir sendir úr landi um leið og sú ákvörðun lá fyrir. Lögregla vísar til ákvæða um að vísa megi útlendingum á brott allt að sjö sólarhringum eftir komuna til Íslands ef slíkt þykir nauðsynlegt vegna allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis.

Go to News Site