Collector
Rannsóknin á fósturheimilinu í Garði: „Þetta mál gerist í samtímanum“ | Collector
Rannsóknin á fósturheimilinu í Garði: „Þetta mál gerist í samtímanum“
Fréttastofa RÚV

Rannsóknin á fósturheimilinu í Garði: „Þetta mál gerist í samtímanum“

„Þegar börn eru tekin svona út af heimilum sínum og vistuð þar sem þau eiga að vera örugg og eiga að vera að fara í skjól og í betri aðstæður, þá missa þau svolítið traust á stjórnvöldum. Í þeirra huga, alla vega þeirra sem ég er í samskiptum við í dag, þá skiptir þau ofboðlega miklu máli að þetta endurtaki sig ekki eða að minnsta kosti verði stöðvað og að á þau sé hlustað,“ segir Lilja Margrét Olsen sem er lögmaður rúmlega 20 barna sem bjuggu á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði á árunum 2009 til 2019. Lilja Margrét var til viðtals um fósturheimilið í Kastljósi í gær eftir að fjallað hafði verið um lögreglurannsókn sem fór fram á heimilinu á árunum 2019 til 2021 í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Í Þetta helst lýsti Aron Eiríksson, sem dvaldi á fósturheimilinu sem unglingur 2014 og 2015, andlegu og líkamlegu ofbeldi sem hann segist hafa orðið fyrir á heimilinu. Lilja var lögmaður Arons og fleiri barna sem töldu sig hafa orðið fyrir harðræði á Gauksstöðum. Í viðtalinu í Kastljósinu undirstrikaði Lilja Margrét hversu mikilvægt það væri fyrir umbjóðendur hennar að á þá væri hlustað og að þeir hefðu misst trú á yfirvöldum hér á landi eftir vistina á Gauksstöðum. Hún undirstrikaði einnig sérstöðu þessa máls þar sem atburðirnir sem voru til rannsóknar hjá lögreglu í tilfelli Gauksstaða væru svo nálægt okkur í tíma. „Þetta mál gerist í samtímanum. Þegar rannsókn þessa máls hófst að beiðni Barnaverndarstofu á sínum tíma 2019 óskaði Barnaverndarstofa eftir aðkomu lögreglu að málinu. Þá var fósturheimilið enn þá í starfsemi og enn þá börn þar vistuð. Þannig að það er mjög sérstakt miðað við önnur mál sem hafa komið upp.“ Rannsóknin á Gauksstöðum var felld niður vegna fyrningar hinna meintu brota í einhverjum tilfellum og í öðrum tilfellum vegna þess að málið þótti ekki líklegt til sakfellingar. Viðtalið við Lilju Margréti í Kastljósinu má hlusta á hér: Lögmaður rúmlega 20 barna sem bjuggu á fósturheimilinu Gauksstöðum segir umbjóðendur sína hafa verið vonsvikna með niðurstöðu lögreglunnar. Hún segir nýtt frumvarp til barnaverndarlaga skipta máli fyrir fólkið sem hún vinnur fyrir. Nýju barnaverndarlögin Lilja var spurð að því í Kastljósinu hvort nýju barnaverndarlögin sem nú er búið að kynna drög að á Alþingi skipti einhverju máli fyrir umbjóðendur hennar. Fréttir hafa verið um þetta frumvarp í fjölmiðlum en þar hefur meðal annars komið fram að velferðarráð Reykjavíkurborgar telji að vinna þurfi frumvarpið betur áður en það verður lagt fram. Í viðtalinu sagðist Lilja Margrét vera vongóð fyrir hönd umbjóðenda sinna um nýja frumvarpið um barnavernd. „Það verður spennandi að sjá hvernig þau líta út. En við erum vongóð en ég vil kannski líka bæta við að það hefur oft komið fram í fréttum að fólk sem lendir svona í dómskerfinu, þolendur, tala um að biðin og rannsóknartíminn og dómsmeðferðin taki allt saman á, að rifja allt upp og svona. Þessi börn eru búin að standa í þessu mjög lengi og það er ofboðslega erfitt fyrir þau að hafa farið í gegnum sakamálarannsóknina og bundið vonir við að á þau væri hlustað og svo er sú rannsókn felld niður. Og núna að fara aftur af stað af því það hafa verið lokaðar dyr.“

Go to News Site