Fréttastofa RÚV
Ríkisborgari frá Kólumbíu var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps og húsbrot í Reykjavík í október 2025. Auk fangelsisvistar þarf ákærði að greiða þolanda 2,5 milljónir króna í miskabætur og tæpar fjórar milljónir í málsvarnarlaun. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa farið í heimildarleysi inn á heimili manns í kjallaraíbúð í Reykjavík. Hann gekk inn í svefnherbergi mannsins sem lá þar sofandi, veittist að honum og stakk hann ítrekað með hníf í höfuð og líkama. Í ákærunni segir að þolandi árásarinnar hafi vaknað og tekist að standa upp en við það hélt ákærði atlögunni áfram og kýldi hann með krepptum hnefa. Þolandi hlaut sentimetra sár á utanverða hægri kinn, bólgu á hægri kinn og fjögur sár á hægri öxl. Ákæran á hendur manninum sneri einnig að vopnalagabroti sömu nótt þar sem hann bar eftirlíkingu af skotvopni á almannafæri og faldi hana í buxnastreng sínum. Hann þarf að afplána fimm ára fangelsisvist að frádregnum þeim tíma sem hann hefur setið í gæsluvarðhaldi. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald í október á síðasta ári. Þá eru fíkniefni gerð upptæk og eftirlíking af skotvopni.
Go to News Site