Collector
Ný #metoo-bylgja í Þýskalandi vegna djúpfalsaðra nektarmynda | Collector
Ný #metoo-bylgja í Þýskalandi vegna djúpfalsaðra nektarmynda
Fréttastofa RÚV

Ný #metoo-bylgja í Þýskalandi vegna djúpfalsaðra nektarmynda

Þúsundir Þjóðverja hafa mótmælt á götum úti síðustu daga til stuðnings sjónvarpskonunni Collien Fernandes, sem varð fyrir því ofbeldi að djúpfalsaðar nektarmyndir af henni fóru í dreifingu á netinu. Fernandes sakar fyrrverandi eiginmann sinn, Christian Ulmen, sem einnig er sjónvarpsmaður, um að dreifa þeim. Hann neitar sök. Mótmælendur hafa safnast saman í mörgum borgum vítt og dreift um Þýskaland og krefjast réttarbóta fyrir þolendur kynferðisáreitis, einkum og sér í lagi á netinu. Mikil umræða hefur sprottið upp í Þýskalandi um stafrænt kynferðisofbeldi, sem líkt hefur verið við #metoo-bylgjuna árið Stjórnvöld í Þýskalandi hafa verið að undirbúa löggjöf sem veitir þolendum aukna vernd en eftir að mál Fernandes komst í hámæli hefur þeirri vinnu verið hraðað. „Í meira en tíu ár var ég áreitt kynferðislega á netinu af eiginmanni mínum,“ segir Fernandes við AFP. „Hann bauð öðrum mönnum að stunda kynlíf með mér. Í fleiri ár leitaði ég að gerandanum, meira að segja með heimildarmynd. Aldrei grunaði mig eiginmann minn.“ Miðlar í Þýskalandi hafa líkt málinu við mál Gisele Pelicot í Frakklandi, sem mátti þola það af hendi eiginmanns síns að hann byrlaði henni ólyfjan og leyfði síðan öðrum mönnum að nauðga henni. Fernandes lagði fyrst fram kæru í máli sínu 2024 gegn ónefndum, meintum gerendum en rannsókn málsins var hætt. Saksóknari segir að málið verði tekið upp að nýju eftir fréttaflutning Der Spiegel, sem leitt hefur umfjöllun um það. Á fimmtudag ávarpaði Fernandes um 17 þúsund mótmælendur á fundi í Hamborg. Hún klæddist skotheldu vesti vegna líflátshótana sem henni bárust. „Sumir menn – og það eru bara menn – vilja drepa mig,“ sagði hún. Auk þess að styðja Fernandes í baráttu hennar segjast mótmælendur vilja sýna öllum þeim stuðning sem ekki hafa rödd til þess að vekja athygli á þjáningum sínum. „Við viljum sýna með skýrum hætti að við þurfum alvöru lög til þess að vernda konur, ekki síst fyrir stafrænu ofbeldi,“ sagði einn skipuleggjenda við AFP.

Go to News Site