Collector
Engin merki um að eldgosahrinu sé að ljúka þrátt fyrir langt goshlé | Collector
Engin merki um að eldgosahrinu sé að ljúka þrátt fyrir langt goshlé
Fréttastofa RÚV

Engin merki um að eldgosahrinu sé að ljúka þrátt fyrir langt goshlé

Engin merki eru um að eldgosahrinu á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka þrátt fyrir hæga kvikusöfnun og langt goshlé. Kvikuhlaup og eldgos eru enn líklegasta sviðsmyndin á Reykjanesskaga, samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar samhliða nýju hættumati fyrir svæðið sem gildir út júní. Rúmlega 24 þúsund rúmmetrar af kviku hafa safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí í fyrra. Eins og áður hafði komið fram sýna líkanreikningar að magn kviku undir Svartsengi hefur aldrei verið meira síðan eldgosahrina hófst á Sundhnúksgígaröðinni í nóvember 2023. „Á meðan kvikusöfnun heldur áfram eru kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni áfram líklegasta sviðsmyndin. Þar sem magn kviku undir Svartsengi er nú meira en áður er mögulegt að næsta eldgos geti orðið umfangsmeira en fyrri gos, nái kvikan að hluta til eða öllu leyti til yfirborðs,“ segir í tilkynningu. Stærsta eldgosið í Kröfluhrinu varð eftir tæplega 3 ára hæga kvikusöfnun Í tilkynningunni er áréttað að hæg kvikusöfnun sé ekki skýr vísbending um að ekki komi til eldgoss og vísað í eldgosahrinuna í Kröflu á árunum 1975 til 1984. Frá árunum 1975 til 1984 urðu 12 kvikuhlaup og 9 sem enduðu í eldgosi. Töluvert dró úr kvikuinnstreymishraða eftir næstsíðasta gosið í nóvember 1981. Tæp þrjú ár liðu þar til næsta, og jafnramt stærsta og síðasta eldgosið varð í ágúst 1984.

Go to News Site