Fréttastofa RÚV
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að þau ríki sem ekki hafi viljað taka þátt í stríðinu gegn Íran og glími við olíuskort, eigi að grípa til aðgerða og sækja olíuna sem situr föst í Hormússundi. „...teljið í ykkur kjark, farið í sundið og TAKIÐ HANA,“ segir Trump á Truth Social og bætir við að Bandaríkin komi þeim ekki til aðstoðar. „Bandaríkin munu ekki hjálpa ykkur lengur, rétt eins og þið studduð ekki okkur. Íran hefur verið stráfellt í raun. Það erfiða er að baki. Farið og sækið ykkar eigin olíu!“ Pete Hegseth, stríðsmálaráðherra Bandaríkjanna, tók í sama streng á blaðamannafundi í dag. „Þetta er ekki okkar vandamál, til lengri tíma litið, jafnvel þó að við höfum að mestu leyti unnið undirbúningsvinnuna sem miðar að því að tryggja að sundið verði opnað,“ sagði hann. Hann vildi ekki útiloka að til landhernaðar kæmi gegn Íran. „Þú getur ekki háð stríð og unnið ef þú segir mótherja þínum hvað þú ert tilbúinn að gera eða hvað þú ert ekki tilbúinn að gera, landhernaður þar meðtalinn.“ Stríðsmálaráðuneytið gæti sannarlega gripið til þess ráðs að ráðast inn í Íran ef forsetinn óskar þess. Olíuverð áfram hátt Her Írans gerði árásir á kúveiskt olíuflutningaskip við höfn í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag. Engan sakaði en um stund leit út fyrir að olía tæki að leka út í höfnina. Betur fór þó en á horfðist. Olíuverð er áfram hátt eins og það hefur verið síðan stríðið hófst. Það hefur hækkað úr um $73 á tunnu af hráolíu og vel upp fyrir $100 og jafnvel upp í $117 eins og á einum tímapunkti í dag. Þetta skilar sér í hærra eldsneytisverði sem hefur síðan hægt og rólega smitast út í verð í öðrum geirum. Í Bretlandi hefur bensínverð hækkað um 14% og dísilverð um 27%. Nokkur ríki hafa gripið til þess ráðs að skammta eldsneyti en þó flest utan Evrópusambandsins. Nokkur ríki innan þess hafa þó lækkað virðisaukaskatt á eldsneyti og önnur gjöld til þess að dempa áhrifin á almenning. Það hefur ekki verið gert hér á landi.
Go to News Site