Collector
Enn sitja Ítalir eftir með sárt ennið | Collector
Enn sitja Ítalir eftir með sárt ennið
Fréttastofa RÚV

Enn sitja Ítalir eftir með sárt ennið

Ítalía mætti Bosníu og Hersegóvínu í úrslitaleik um sæti á HM í kvöld. Lengi vel leit út fyrir ítalskan sigur því Moise Kean kom liðinu yfir á 15. mínútu 1-0. Það var svo ekki fyrr en á 79. mínútu að Haris Tabakovic fann jöfnunarmark fyrir Bosníu og Hersegóvínu og staðan eftir venjulegan leiktíma enn 1-1. Hvorugt liðið skoraði í framlengingunni og því gripið til vítaspyrnukeppni. Þar skoruðu Bosníumenn úr öllum sýnum spyrnum en Ítalir klikkuðu á tveimur. Ítalir sjá því á eftir HM-sætinu sem Bosnía og Hersegóvína fær. Ítalía hefur ekki verið með á HM síðan 2014. Tékkar náðu sætinu einnig í vítakeppni Þá mættust Danmörk og Tékkland einnig í úrslitaleik. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma, 2-2, og því var leiknum framlengt. Enn var staðan 2-2 að henni lokinni og vítaspyrnukeppni næst á dagskrá. Þar reyndust Tékkar seigari því Danir skoruðu aðeins úr einni spyrnu en Tékkar úr þremur. Tékkland er því á leið á HM. Fleiri úrslitaleikir voru spilaðir í kvöld og Svíþjóð náði sæti á mótinu með 3-2 sigri á Póllandi. Loks hafði Tyrkland betur gegn Kósóvó, 1-0, og fær farseðil á HM að launum.

Go to News Site