Collector
Ekki hagsmunir barna að þau séu frelsissvipt í brottfararstöð | Collector
Ekki hagsmunir barna að þau séu frelsissvipt í brottfararstöð
Fréttastofa RÚV

Ekki hagsmunir barna að þau séu frelsissvipt í brottfararstöð

Allsherjar- og menntamálanefnd hefur nú til umfjöllunar frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð sem var lagt fram á Alþingi í byrjun nóvember. Verði frumvarpið samþykkt verður lögreglu heimilt að frelsissvipta fólk sem er búið að ákveða að senda úr landi eða ef mál þeirra er til meðferðar og getur leitt til brottflutnings, í þar til gerðum búðum. „Eiginlega allar mannréttindastofnanir, Sameinuðu þjóðirnar, allir sem koma að þessum málum eru sammála um að börn eigi ekki heima í varðhaldi á þessum forsendum, það er að segja á þeim forsendum að þau eru útlendingar,“ segir Eva Bjarnadóttir, teymisstjóri innanlandsverkefna hjá UNICEF á Íslandi. Hún segir að lög um barnasáttmálann eigi við um öll börn, líka þau börn sem eru á flótta. Stjórnvöld hafa búið til leiðarvísi um hvernig eigi að meta slíkar tillögur út frá hagsmunum barnsins, Eva segir að UNICEF hafi ekki fengið séð að það hafi verið gert í þessu tilviki. Ekki bestu hagsmunir barns að þau séu frelsissvipt í brottfararstöð Salvör Nordal umboðsmaður barna segir augljóst að það séu ekki bestu hagsmunir barns að það sé lokað inni og frelsisvipt í brottfararstöð. „Það hafa sýnt sig rannsóknir að þetta hefur mikil áhrif á börn og skaðar þau að vera í slíku úrræði. Þau hafa þannig stöðu - þetta er mjög viðkvæm staða sem börn eru í sem flóttamenn og það er ekki réttlætanlegt að þau séu lokuð inni í slíku úrræði.“ Salvör segir að aðalhugtak frumvarpsins í þeirra huga sé frelsissviptingin, en á meðan það standi enn í frumvarpinu sé það andstætt Barnasáttmálanum og réttindum barna. Mikilvægt sé að byggja upp traust Áhersla frumvarpsins er samkvæmt ráðuneytinu að víkja frá því að vista fólk í fangelsi sem á að vísa úr landi. Á brottfararstöð geta fjölskyldur verið saman, þeim er tryggður viðeigandi aðbúnaður og þjónusta. Í breytingartillögum sem ráðuneytið setti til að bregðast við umsögnum þeirra og annarra er áréttað að fjölskyldur og börn verði vistuð í sérstöku fjölskylduhúsnæði, algjörlega aðskilið öðrum á gæsluvarðhaldsstöðinni, og að vista fjölskyldur þar sé algjört lokaúrræði ef önnur vægari hafa ekki gengið, eins og tilkynningaskylda. Eva segir mikilvægt að yfirvöld byggi upp traust þessa hóps með góðum upplýsingum og eftirfylgni. Með því verði samstarfið og samskiptin betri. Best væri ef börnin gætu áfram búið á sínum stað, sótt skóla og lifað eðlilegu lífi þar til þau fari úr landi. Farið var nánar yfir málið í Kastljósi kvöldsins. Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfarastöð hefur hlotið gagnrýni, meðal annars vegna heimildar til að vista þar börn. Umboðsmaður barna segir frumvarpið vera andstætt Barnasáttmálanum og brjóta gegn réttindum barna.

Go to News Site