Collector
Bandaríkjaher verði farinn frá Íran „von bráðar“ | Collector
Bandaríkjaher verði farinn frá Íran „von bráðar“
Fréttastofa RÚV

Bandaríkjaher verði farinn frá Íran „von bráðar“

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á fundi í Hvíta húsinu í dag að bandarískir hermenn myndu yfirgefa Íran „von bráðar“. Trump sagði að tímaramminn miðaðist við tvær til þrjár vikur. Stjórn Trumps myndi á þeim tíma eiga í viðræðum við írönsk stjórnvöld samhliða áframhaldandi loftárásum á landið. Trump var á fundinum einnig spurður út í möguleg áhrif hás eldsneytisverðs frá því að stríðið hófst þann 28. febrúar. „Það eina sem ég þarf að gera er að fara frá Íran og við munum gera það mjög fljótlega, þá mun allt hrynja hjá þeim.“ Trump sagði að endalok aðgerða Bandaríkjahers væru ekki háð því að samkomulag næðist við Íran: „Hvort sem við erum með samning eða ekki, þá skiptir það engu máli,“ sagði Bandaríkjaforseti. Íranar hafa í hefndarskyni lokað siglingarleiðinni um Hormússund fyrir olíuflutningaskip. „Þegar okkur finnst að þeir hafi verið sendir aftur á steinöld í langan tíma og geti ekki smíðað kjarnorkuvopn, þá förum við,“ sagði Trump.

Go to News Site