Fréttastofa RÚV
29 eru látnir eftir að rússnesk herflugvél fórst á Krímsskaga í kvöld. Vélin sem hrapaði var flutningavél af gerðinni Antonov-26. Í tilkynningu frá rússneska varnarmálaráðnuneytingu segir að allir innanborðs, bæði farþegar og áhöfn hafi farist með vélinni. Neyðarmerki barst frá vélinni um klukkan 16 á íslenskum tíma, fljótlega fundu leitar- og björgunarsveitir flak vélarinnar. Í tilkynningu rússneska varnarmálaráðuneytisins segir að sex manna áhöfn ásamt 23 farþegum hafi farist í slysinu. Slysið er talið hafa orðið vegna tæknilegrar bilunnar. Á flaki vélarinnar sáust engin ytri ummerki sem gætu hafa ollið slysinu. Fréttin verður uppfærð.
Go to News Site