Collector
Rubio segir tímabært að endurskoða tengslin við NATÓ | Collector
Rubio segir tímabært að endurskoða tengslin við NATÓ
Fréttastofa RÚV

Rubio segir tímabært að endurskoða tengslin við NATÓ

Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir í samtali við Fox-fréttastöðina þarlend stjórnvöld þurfa að endurmeta tengslin við Atlantshafsbandalagið þegar stríðinu í Íran linnir. Rubio sagðist hafa verið einn einarðasti stuðningsmaður NATÓ-aðildar meðan hann sat í öldungadeildinni. Gildið hafi ekki síst legið í bandarískum herstöðvum í Evrópu, sem auðveldaði hernum aðgerðir víða um heim. Rubio kveðst orðinn mjög efins og spurði í viðtalinuá Fox hvers vegna staðan væri orðin sú að Bandaríkin væru í bandalagi með ríkjum sem banna þeim að nota herstöðvar á ófriðartímum. Þau hefðu ekki verið beðin um að gera árásir á Íran. „Við þurfum hreinlega að ákveða hvaða ávinning Bandaríkin hafa af veru sinni í NATÓ,“ sagði Rubio og bætti við að lokaákvörðunin um framhaldið liggi hjá Donald Trump forseta . Nokkur Evrópuríki hafa dregið úr heimildum Bandaríkjanna til nýtingar herstöðva. Ítölsk stjórnvöld bönnuðu í gær lendingu bandarískrar flugvélar á leið til Mið-Austurlanda í hernaðarskyni og Spánverjar lokuðu lofthelginni fyrir bandarískar flugvélar á leið til Írans daginn áður. Um það bil 66 prósent Bandaríkjamanna vilja að Bandaríkjastjórn finni skjóta leið til að ljúka stríðinu gegn Íran. Þetta sýna niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar sem Ipsos gerði fyrir Reuters-fréttaveituna. Könnunin var gerð um síðustu helgi meðal 1.021 Bandaríkjamanns. Um það bil 27 af hundraði segja hins vegar að Bandaríkin skyldu ekki láta af árásum á Íran fyrr en öllum markmiðum verður náð, þótt það kosti lengri styrjöld. Donald Trump forseti hefur boðað að hann flytji þjóðinni „nýjustu upplýsingar um stöðu mála í Íran“ í ávarpi síðar í dag, 1. apríl. Hann tilkynnti í gær að stríðinu lyki á næstu tveimur til þremur vikum en þangað til yrði loftárásum fram haldið. Olíuverð lækkaði eftir að Masoud Pezeshkian Íransforseti sagði klerkastjórnina vilja ljúka stríðinu gegn tryggingum um að ekki yrði lagt til atlögu að landinu aftur.

Go to News Site