Collector
Bandarískum blaðamanni rænt í Írak — loftárásum linnir ekki | Collector
Bandarískum blaðamanni rænt í Írak — loftárásum linnir ekki
Fréttastofa RÚV

Bandarískum blaðamanni rænt í Írak — loftárásum linnir ekki

Íröksk vígasveit, studd af Írönum, rændi Shelly Kittleson, sjálfstætt starfandi bandarískum blaðamanni, í höfuðborginni Bagdad í gær, að sögn bandaríska utanríkisráðuneytisins. Það segist hafa varað blaðamenn við að starfa á þessum slóðum en að það muni beita öllum ráðum til að frelsa hana hið fyrsta. Ísraelsher hefur í morgun gert stórfelldar árásir á Teheran, höfuðborg Írans. Íranska ríkisfréttastöðin IRIB segir sprengingar hafa kveðið við í miðborginni og hverfum austan- og norðanvert. Loftvarnarkerfi Ísraels brugðust við eldflaugaárás frá Jemen í nótt. Íranir gerðu drónaárás á alþjóðaflugvöllinn í Kúveit í nótt með þeim afleiðingum að eldsneytisgeymar standa í ljósum logum. Innanríkisráðuneyti Barein segir elda loga í viðskiptahverfi eftir íranska árás og stjórnvöld í Sádi Arabíu segjast hafa tortímt nokkrum drónum. Árás var einnig gerð á olíuskip undan ströndum Katar að sögn breskra siglingayfirvalda.

Go to News Site