Collector
Lykilmaður í innherjasvikum hjá Icelandair dæmdur fyrir skattsvik | Collector
Lykilmaður í innherjasvikum hjá Icelandair dæmdur fyrir skattsvik
Fréttastofa RÚV

Lykilmaður í innherjasvikum hjá Icelandair dæmdur fyrir skattsvik

Kristján Georg Jósteinsson hlaut í síðustu viku átta mánaða dóm fyrir stórfelld skattalagabrot. Sannað þótti að hann hefði vantalið tekjur sínar um 87 milljónir króna og þannig komið sér hjá því að borga tekjuskatt og útsvar upp á 39 milljónir. Áður dæmdur fyrir innherjasvik og fjárhættuspil Kristján Georg hefur áður komist í fréttir vegna afbrota. Hann var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi 2019 fyrir þátt sinn í innherjasvikamáli hjá Icelandair. Hann hlaut þyngsta dóminn af þremur sem voru sakfelldir fyrir þau brot, einn þeirra var millistjórnandi hjá flugfélaginu. Þá gerði dómurinn 32 milljónir króna upptækar af reikningum fyrirtækisins Fastrek sem var í hans eigu. Kristján Georg var einnig dæmdur í átján mánaða fangelsi 2016 fyrir fjárhættuspilastarfsemi og peningaþvætti. Póker og laun í reiðufé Fastrek kemur einnig við sögu í skattaundanskotum sem Kristján Georgs var dæmdur fyrir í síðustu viku, sem og fyrirtækin KFK og Neostar 75 76 SL. Fyrirtækið KFK hélt utan um rekstur kampavínsklúbbsins Shooters . Meðal þess sem kemur fram í dóminum yfir Kristjáni Georgi er að hann hafi hvorki gert grein fyrir eignarhaldi sínu á Neostar og Fastrek né erlendum bankareikningum sínum í skattframtölum. Hann vantaldi tekjur sínar á fjögurra ára tímabili, frá 2014 til 2017. Skýringar Kristjáns fyrir dómi voru margvíslegar og tóku breytingum. Hann skýrði hluta greiðslnanna sem hann fékk með því að hann hefði meðal annars séð um að greiða starfsfólki laun í reiðufé. Þá hefði hann tekið við greiðslum í áhugamannafélagi um póker vegna spilamennsku í klúbbnum, greiðslum sem hann hafi svo ráðstafað til vinningshafa hverju sinni.

Go to News Site