Fréttastofa RÚV
Í gærkvöld lauk umspili um síðustu lausu sætin inn á mótið. Þau hrepptu Írak, Lýðstjórnar-lýðveldið Kongó, Bosnía, Tékkland, Tyrkland og Svíþjóð. Þar með er jafnframt algjörlega ljóst hvernig riðlakskipting HM verður, en dregið hafði verið í riðla 5. desember þó að enn ættu nokkur landsliðs eftir að tryggja sér þátttökurétt þá. HM hefst 11. júní og riðlakeppnin stendur yfir til 27. júní. Degi síðar hefst útsláttarkeppnin með 32-liða úrslitum og heimsmeistaramótinu lýkur svo með úrslitaleik 19. júlí. Hér fyrir neðan má sjá riðlaskiptinguna á HM í sumar. Allir leikir mótsins verða sýndir á rásum RÚV. Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast í 32-liða úrslit, en átta lið af 12 í 3. sæti fá einnig þátttökurétt í útsláttarkeppninni.
Go to News Site