Vísir
Undanfarna daga hefur menntamálaráðherra haldið því fram að íslensk börn séu minna í skóla en jafnaldrar þeirra í nágrannalöndum og að það skýri slakan árangur í alþjóðlegum samanburði. Auk þess hefur verið dregin upp mynd af dýru og óhagkvæmu menntakerfi sem skili litlum árangri. Þessar hugmyndir sem fram koma í minnisblaði ráðherra eru byggðar á vafasamri notkun gagna og í sumum tilvikum röngum upplýsingum. Það er um að gera að rýna í alla þætti íslenska grunnskólakerfisins í þeim tilgangi að bæta það en við verðum að gera það á vandaðan hátt.
Go to News Site