Fréttastofa RÚV
Fjarðarheiði lokaðist óvenju oft vegna óveðurs í nýliðnum mánuði. Samkvæmt tölum frá Vegagerðinni var heiðin merkt ófær um lengri eða skemmri tíma í átján daga í mars. Vörubíll lokaði veginum í morgun Fjarðarheiði er veðravíti og framan af morgni var hún merkt ófær. Þar var þó einhver umferð þangað til vörubíll lenti í vandræðum, þveraði veginn og lokaði honum. Þegar hreyfir vind hlaðast skaflar fljótt upp þar sem vegurinn hlykkjast upp heiðina, bæði Egilsstaðamegin og Efri- og Neðri-Staf Seyðisfjarðarmegin. Uppi á heiðinni liggur vegurinn í 600 metra hæð á tíu kílómetra kafla og þar getur skyggni orðið slæmt, mikill skafrenningur og driftir inn á veginn. Snjógöngin verða einbreið og þarf ekki nema kannski 12 metra á sekúndu til að þar verði blint. Síðustu ellefu dagar mánaðarins mjög vondir Mars var erfiður á Fjarðarheiði. Samkvæmt tölum frá Vegagerðinni var vegurinn merktur ófær 18 daga. Stundum varði lokunin aðeins í nokkra klukkutíma en þá eru aðstæður tæpar áður en veginum er lokað. Jafnvel þótt vegurinn sé merktur opinn er stundum svo blint á heiðinni að fólk treystir sér ekki til að keyra yfir. Seinni hluti mánaðarins var sérstaklega slæmur. Í ellefu daga samfleytt, 21.–31. mars, var Fjarðarheiði merkt ófær hluta dags á hverjum degi og í níu daga varði ófærðarmerkingin lengur en í átta klukkutíma. Lýgjandi innilokun og hætta Á sama tíma var snjóflóðahætta á Seyðisfirði. Óvissustig var á Austfjörðum í þrjá og hálfan sólarhring og sérstakt hættustig og rýmingar í gildi á Seyðisfirði í rúman sólarhring, yfir tvær nætur. Seyðfirðingar segja innilokunina og hættuna mjög lýjandi. „Heiðin tekur svo rosalega mikið pláss. Maður er alltaf að spá í hvernig hún er, hvort maður sé að komast eða ekki. Getur maður gert þessi plön eða hin? Þessi ákvörðun að fara ekki í göngin er áfall og fólk er líka að upplifa það sem persónulegt áfall. Fyrst eftir að það kom þá titraði ég inni í mér og mér var flökurt og þetta er einkenni sem ég þekki eftir skriðuföllin á Seyðisfirði fyrir fimm árum síðan. En það er einhvern veginn enn þá verra þegar þetta er svona manngert,“ segir Elfa Hlín Sigrúnar Pétursdóttir íbúi á Seyðisfirði.
Go to News Site