Fréttastofa RÚV
Samtök aðgerðasinna sem berjast gegn herforingjastjórninni í Myanmar í suðaustur Asíu vilja að íslensk stjórnvöld afturkalli nýlega skipun ræðismanns fyrir Ísland í landinu. Ræðismaðurinn heitir Ko Ko Latt og telja samtökin að hann vinni með herforingjastjórninni Myanmar sem samtökin telja ólöglega. Samtökin kalla sig Justice for Myanmar eða Réttlæti fyrir Myanmar og sendu þau bréf með þessari kröfu til utanríkisráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þann 27. mars. Samtökin deildu bréfinu með fréttastofu eftir að það var sent. Samtökin Justice for Myanmar voru stofnuð árið 2021 eftir valdarán hersins í Myanmar. Þá var lýðræðislega kjörinni stjórn Myanmar steypt af stóli og leiðtogar stjórnmálaflokksins National League for Democracy voru settir í fangelsi. Þeirra þekktastur er friðarverðlaunahafi Nóbels, Aung San Suu Kyi, sem var utanríkisráðherra á þessum tíma. Valdarán hersins kom í kjölfarið á kosningasigri National League for Democracy árið á undan. Herinn vændi stjórnmálaflokkinn um kosningasvik og tók völdin í landinu þann 1. febrúar 2021. Fjallað er um bréfið til Þorgerðar Katrínar og stjórnmálaástandið í Myanmar í fréttaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér: Samtök aðgerðasinna sem berjast gegn herforingjastjórn Myanmar hafa sent kröfubréf til utanríkisráðherra. Þau vilja að ræðismaður Íslands í Myanmar verði leystur undan skyldum sínum. Krafan er í skoðun segir ráðuneytið. Krafan er í skoðun hjá ráðuneytinu Í svari aðstoðarkonu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur kemur fram að íslenska utanríkisþjónustan sé með um 200 ólaunaða ræðismenn í sinni þjónustu. Þar segir jafnframt að gerist ræðismaður sekur um brot á viðskiptaþvingunum sé viðkomandi leystur frá skyldum sínum. Orðrétt segir í svari aðstoðarkonunnar sem heitir Ingileif Friðrikssdóttir: „Þar sem sendiskrifstofa Íslands nýtur ekki við hefur utanríkisþjónustan rúmlega 200 ólaunaða ræðismenn á sínum snærum út um allan heim. Þeir eru valdir eftir meðmæli þriggja aðila og eftir atvikum er leitað umsagnar norrænna sendiráða á viðkomandi stöðum. Með þessu er reynt að tryggja að æskilegir kandídatar veljist til starfans. Gerist aðili brotlegur við íslensk lög, þ.m.t. um viðskiptaþvinganir, annað hvort þannig að utanríkisráðuneytinu hafi yfirsést í skipunarferlinu eða síðar, er viðkomandi leystur frá skyldum sínum sem ræðismaður. Ráðuneytinu barst í síðustu viku erindi frá samtökunum Justice for Myanmar þess efnis að ræðismaður Íslands í Myanmar eigi í viðskiptasambandi við fyrirtæki sem tengjast stjórnvöldum í Myanmar, m.a. fyrirtæki sem eru á lista ESB yfir aðila sem sæta viðskiptaþvingunum. Þær viðskiptaþvinganir sem um ræðir hafa verið leiddar í íslensk lög. Málið er í skoðun af hálfu ráðuneytisins.“ Samhengi málsins Eftir valdaránið í Myanmar árið 2021 fordæmdu íslensk stjórnvöld valdaránið í Myanmar á fundi hjá Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna og kölluðu eftir því að öllum föngum yrði sleppt úr haldi. Enn í dag eru um 22 þúsund manns í fangelsi í Myanmar í kjölfar valdaránsins. Ísland tók sömuleiðis þátt í viðskiptaþvingunum gegn herforingjastjórninni í Myanmar út af valdaráninu sem aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Stór hluti af rökum Justice for Myanmar í bréfinu snýst um að Ísland sé með skipun Ko Ko Latt að brjóta gegn þessum viðskiptaþvingunum sem landið hefur sjálft samþykkt og sem leiddar hafa verið í lög á Íslandi. Borgarastríð hefur geisað í Myanmar frá valdaráninu. Þar takast á fylgismenn National League for Democracy og herinn í landinu sem framkvæmdi valdaránið. Talið er að á bilinu 15 til 25 þúsund manns hafi dáið í þessum átökum. Borgarastríðið hefur haft skelfilegar afleiðingar fyrir óbreytta borgara. Um 1,3 til 1,5 milljónir manna hafa flúið Myanmar, aðallega til nágrannalandanna. Samtökin segja að Ko Ko Latt þessi sé stjórnarformaður og eigandi fyrirtækis sem flytji út timbur í samvinnu við ríkisfyrirtæki sem herforingjastjórnin ræður yfir. Samtökin segja að Evrópusambandið og Ísland hafi beitt þetta ríkisfyrirtæki viðskiptaþvingunum eftir valdaránið í landinu árið 2021. Samtökin segja að fyrirtæki Ko Ko Latt flytji meðal annars út mikið magn af tekki til ýmissa landa, meðal annars Tyrklands. Justice for Myanmar vill meina að Ko Ko Latt sé með þessum viðskiptum sínum að hjálpa til við að fjármagna herforingjastjórnina í Myanmar og að þetta brjóti gegn viðskiptaþvingunum sem í gildi eru.
Go to News Site