Fréttastofa RÚV
Dalvíkurbyggð var í gær dæmd til að greiða stúlku 450 þúsund krónur í miskabætur. Kennari sló stúlkuna utan undir þegar hún var þrettán ára, fyrir nokkrum árum. Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi stúlkunni í vil. Þetta eru önnur málaferlin sem hafast af atvikinu. Í því fyrra dæmdi Hæstiréttur sveitarfélagið til að greiða kennaranum 11 milljónir króna í bætur vegna ólöglegrar uppsagnar. Kennarinn taldi stúlkuna trufla kennslu þar sem hún sat á grasflöt við fótboltavöll þar sem nemendur léku fótbolta. Íþróttakennarinn mun hafa beðið stúlkuna um að fara en samskiptum þeirra lokið með því að stúlkan gaf kennaranum kinnhest og var svarað í sömu mynt af kennaranum. Kennarinn var rekinn úr starfi og fór í mál við bæinn. Hún tapaði málaferlunum í Landsrétti en Hæstiréttur dæmdi henni í vil. Dómararnir sögðu skólastjórnendur ekki hafa skoðað háttsemi kennarans heildstætt og sögðu ekki hægt að ætlast til þess að starfsfólk bregðist alltaf við óvæntum og bráðum aðstæðum á óaðfinnanlegan hátt. Stúlkan krafðist bóta frá Dalvíkurbyggð þar sem kennari hefði rekið henni kinnhest í skólastarfi. Bærinn hafnaði bótaskyldu og kvaðst hafa brugðist afdráttarlaust við auk þess sem hegðun kennarans væri út fyrir þau mörk sem féllu undir vinnuveitendaábyrgð. Dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra sagði að með dómi sínum hefði Hæstiréttur þegar metið það svo að brot kennarans gæti varðar áminningu vinnuveitanda samkvæmt kjarasamningi. Atvikið sem deilt væri um hefði átt sér stað á skólalóðinni og samskipti nemanda og kennara verið hluti af starfi kennarans og í krafti þess. Ljóst þótti að atvikið hefði haft áhrif á stúlkuna og var bærinn dæmdur bótaskyldur.
Go to News Site