Collector
Vegagerðin semur við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar | Collector
Vegagerðin semur við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Fréttastofa RÚV

Vegagerðin semur við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar

Vegagerðin hefur gert samning við belgíska dýpkunarfyrirtækið Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar til 2029. Fyrirtækið vann áður að dýpkun hafnarinnar árin 2015 til 2018. Fjögur tilboð bárust í verkið sem felur í sér reglubundna dýpkun á hafnarsvæði og nágrenni hafnarinnar. Áætlað er að árlegt dýpkunarmagn sé á bilinu 250 til 500 þúsund rúmmetrar. Skipið sem sér um dýpkunina heitir Sebastian Cabato. Það var byggt 2011 og er 93 metrar að lengd og 19,8 metrar að breidd. Landeyjahöfn enn lokuð Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir þetta góð tíðindi fyrir samgöngur til Eyja. „Þetta hefur bara gríðarlega mikla þýðingu. Þetta eru mjög jákvæðar fréttir. Belgarnir hafa verið hjá okkur áður og búa yfir mikilli tæknilegri getu, góðum skipakosti og reynslu. Þannig að þetta eru bara mjög góðar fréttir fyrir dýpkun við Landeyjarhöfn,“ segir hún. Landeyjahöfn er enn lokuð og siglir Herjólfur því á milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar sem stendur. Íris vonast til að sanddæluskipið Álfsnes geti þó opnað höfnina sem fyrst fyrir vorið. Jan De Nul taki svo við að hausti. „Það er búin að vera rosalega erfið tíð og ekki hefur verið hægt að dýpka neitt og við erum orðin mjög þreytt á því að það sé ekki búið að opna höfnina,“ segir Íris.

Go to News Site