Collector
Góður og mikilvægur fundur um Finnafjarðarverkefnið | Collector
Góður og mikilvægur fundur um Finnafjarðarverkefnið
Fréttastofa RÚV

Góður og mikilvægur fundur um Finnafjarðarverkefnið

Ágætlega var mætt á sameiginlegan íbúafund Vopnafjarðarhrepps og Langanesbyggðar um Finnafjarðarverkefnið í gær. Sérstakir gestir fundarins voru meðal annars Robert Howe, forstjóri þýska fyrirtækisins Bremenports og Hafsteinn Helgason, sviðsstjóri þróunarsviðs hjá Eflu. „Þetta var bara mjög góður fundur og mikilvægur fundur á þessum tímapunkti. Það var bara ágætis mæting. Það voru um 30 manns í salnum og svo var töluvert af fólki að horfa í streymi,“  sagði Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir, varaoddviti Langanesbyggðar og fundarstjóri. Fundinum, sem fram fór á Þórshöfn, var einnig streymt og voru fjölmargir sem horfðu í gegnum streymi að sögn Halldóru Jóhönnu Friðbergsdóttur, sem var fundarstjóri í gær. Leiðinleg færð var á Hófaskarðinu sem orsakaði mögulega að færri komust en ætluðu sér. Verkefnið lengi í þróun Það var árið 2019 sem Vopnafjarðarhreppur og Langanesbyggð undirrituðu samning við Bremenports um alþjóðlega stórskipahöfn í Finnafirði. Verkefnið hefur verið í þróun í nærri tvo áratugi og teygir anga sína víða. Samhliða stórskipahöfninni, sem Bremenports ætla að byggja upp. hefur verið rætt um mikið iðnaðar- og athafnasvæði, sem og vindorkuver til þess að sjá þessu öllu fyrir rafmagni. Upplýsingar frá Bremenports hafa verið óljósar og nokkur óvissa ríkt um ýmsa þætti. Vindorkuver á Langanesi Næstu skref í Finnafjarðarverkefninu eru að taka ákvarðanir um orkuöflun og hvernig það verður skaffað. Horft er sérstaklega til vindorkuvers í því samhengi: „Næst er náttúrulega þessi orkuöflun í rauninni. Það er bara að skýrast hvað er í boði og hvað er mögulegt. Það þarf orku. Það þarf löggjöf utan um vindmyllur til dæmis frá stjórnvöldum. Það er ýmislegt sem þarf að ganga upp samhliða, “ sagði Halldóra og er hóflega bjartsýn um framhaldið: „Þetta bara hefur sinn gang. Ég held að það sé mikilvægt að allar upplýsingar komi fram og fólk geti myndað sér skoðun og fengið að melta þetta aðeins í rólegheitum“

Go to News Site