Collector
Jarðskjálfti suðaustan af Skálafelli fannst í byggð | Collector
Jarðskjálfti suðaustan af Skálafelli fannst í byggð
Fréttastofa RÚV

Jarðskjálfti suðaustan af Skálafelli fannst í byggð

Jarðskjálfti að stærð 2,9 mældist fjórum kílómetrum suðaustan af Skálafelli skömmu fyrir klukkan sjö í kvöld. Fregnir hafa borist af því að skjálftinn hafi fundist vel í byggð, til að mynda í Hveragerði og á Selfossi. Skjálfti að stærðinni 2,3 mældist um tuttugu mínútum síðar, 3,4 kílómetrum norð-austan af Skeggja á Hengli.

Go to News Site