Collector
Vilja efla áfallaþol á óvissutímum | Collector
Vilja efla áfallaþol á óvissutímum
Fréttastofa RÚV

Vilja efla áfallaþol á óvissutímum

Ísland tekur þátt í samstarfsverkefni Evrópusambandsins og 25 Evrópuríkja undir heitinu Joint Action Stockpile - eða samstarf um birgðir - sem miðar að því að efla sameiginlegan viðbúnað gagnvart alvarlegum heilbrigðisógnum. Meðal annars er horft til þess ástands sem skapaðist í Covid-faraldrinum þar sem framboð á lækningavörum reyndist takmarkað og ósamræmis gætti á milli aðgerða einstakra ríkja. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir slíkt samstarf mikilvægt á óvissutímum. „Við lifum ekki lengur á friðartímum. Það er stríð í Evrópu, það er stríð fyrir botni Miðjarðarhafs. Það geta alltaf komið farsóttir og það mun koma annar heimsfaraldur. Auk þess eru það loftslagsbreytingar og vaxandi sýklalyfjaónæmi. Þannig að neyðarástand getur skapast af ýmsu,“ segir Guðrún. Þarf oft lítið til að keðjan rofni Eitt af því sem heilbrigðisyfirvöld horfa til er að tryggja nægar lyfjabirgðir til að koma í veg fyrir skort. „Keðjurnar eru orðnar svo flóknar í framleiðslu og dreifingu að það þarf oft lítið til að þetta rofni,“ segir Guðrún. Guðrún segir að Covid-faraldurinn hafi sýnt að viðbúnaður hér á landi sé almennt góður. „En við getum gert betur með skipulag. Við höldum líka öryggisbirgðir lyfja en það vantar upp á hjá okkur að hafa betri kortlagningu á því hvar þessar birgðir eiga að vera, hverjir eiga að halda þær, hvað á að vera í þeim og hvað mikið. Það er ekki vel skilgreint eins og er. Þó við höfum haft birgðirnar. Við getum gert betur þar og sú vinna er hafin,“ segir Guðrún. Þessu geti þó fylgt mikill kostnaður. „Lönd eru sum að miða við sex mánuði. Það er auðvitað langur tími og mikill kostnaður að halda úti slíkum birgðum. Það þarf auðvitað að skoða það í því samhengi. En auðvitað þurfum við að hafa einhvern tíma. Því við gætum þurft að reiða okkur á slíkt. Það er vel mögulegt,“ segir Guðrún. Sóttvarnalæknir segir þörf á að uppfæra skipulag og utanumhald með neyðarbirgðum lyfja hér á landi. Efla þurfi viðbúnað og áfallaþol meðal annars vegna ríkjandi óvissu í alþjóðamálum.

Go to News Site