Collector
Haukar og Fram nokkuð þægilega í undanúrslit | Collector
Haukar og Fram nokkuð þægilega í undanúrslit
Fréttastofa RÚV

Haukar og Fram nokkuð þægilega í undanúrslit

Ljóst er hvaða lið mæstast í undanúrslitum Olísdeildar kvenna í handbolta. Valur og ÍBV enduðu í tveimur efstu sætum deildarinnar og fóru beint í undanúrslit en Haukar og Fram unnu sæti sín í dag. Haukar höfðu betur gegn KA/Þór á Akureyri, 20-25 . Heimakonur leiddu lengi vel í fyrri hálfleik, mest með fjórum mörkum, en Haukar sneru leiknum sér í hag áður en flautað var til hálfleiks þar sem þær voru yfir, 11-14. Sigurinn var aldrei í hættu eftir það. Haukar unnu fyrri leik liðanna 27-24 og mæta ÍBV í undanúrslitum. Framarar ekki í vandræðum Fram vann svo ÍR í seinni leik dagsins, 29-25 . Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn en Framarar voru tveimur mörkum yfir að honum loknum, 15-13. ÍR-ingum tókst ekki að brúa bilið og Fram, sem vann fyrri leikinn 27-31, mætir Val í undanúrslitum. Áætlað er að undanúrslitin byrji 15. apríl. Þar þarf að vinna þrjá leiki til að komast í úrslit.

Go to News Site