Fréttastofa RÚV
Úrslitakeppni karla í körfubolta hófst í kvöld með tveimur leikjum í 8-liða úrslitum. Njarðvík vann Grindavík, 87-97 , og Stjarnan hafði betur gegn KR, 97-86 . Grindavík varð deildarmeistari á meðan Njarðvík endaði í 8. sæti. Það voru líka Grindvíkingar sem byrjuðu betur í kvöld og þeir leiddu með 10 stigum að loknum fyrsta leikhluta en munurinn var kominn niður í 4 stig í hálfleik, 41-37. Heimamenn komust svo 13 stigum yfir þegar þrjár mínútur voru eftir af þriðja leikhluta en þá skoruðu Njarðvíkingar 14 stig í röð og tóku forystuna. Gestirnir voru svo mun sterkari í lokafjórðungnum og unnu tíu stiga sigur, 87-97. Njarðvík leiðir því einvígið 1-0 en vinna þarf þrjá leiki til að komast í undanúrslit. Næsti leikur liðanna er í Njarðvík á mánudaginn, annan í páskum. Íslandsmeistararnir byrja vel Stjarnan er ríkjandi Íslandsmeistari og endaði í þriðja sæti deildarinnar í ár. Garðbæingar tóku því á móti liðinu sem varð í sjötta sæti; KR. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn en það voru KR-ingar sem leiddu að honum loknum, 51-55. Stjörnumenn voru hins vegar með öll völd í þriðja leikhluta og unnu hann 24-9, staðan þá orðin 75-64. Í fjórða leikhluta var aldrei vafi á hvort liðið myndi bera sigur af hólmi, Stjarnan vann 97-86 og er því 1-0 yfir í einvíginu. Annaðkvöld mætast Tindastóll og ÍR annars vegar og Valur og Keflavík hins vegar.
Go to News Site