Fréttastofa RÚV
Geimfarinu Orion var skotið á loft frá Kennedy-geimferðastöðinni í Flórída fyrir skemmstu. Orion, geimfari Artemis-2 leiðangursins, var skotið á loft klukkan 22:35 að íslenskum tíma eða klukkan 18:35 að staðartíma. Í spilaranum hér að neðan má sjá þegar geimfarinu var skotið upp. Orion, geimfari Artemis-2 leiðangursins, hefur verið skotið á loft. Fjórir geimfarar halda nú í fyrstu mönnuðu geimferð að tunglinu síðan árið 1972. Fjórir geimfarar eru um borð í geimfarinu, Bandaríkjamennirnir Reid Wiseman, Victor Glover og Christina Koch ásamt hinum kanadíska Jeremy Hansen. Leiðangurinn er fyrsta mannaða ferðin að tunglinu síðan árið 1972 . Geimfararnir munu þó ekki lenda á tunglinu heldur ferðast í kringum það. Þeir ferðast því lengra frá jörðinni en í nokkurri annarri mannaðri geimferð í sögunni eða alls um 405 þúsund kílómetra. Áætlað er að leiðangurinn taki tíu daga. „Við förum fyrir allt mannkynið,“ sagði Jeremy Hansen fyrir skotið. Charlie Blackwell-Thompson, stjórnandi geimskots Artemis-leiðangursins, ávarpaði geimfarana fyrir ferðalagið. „Reid, Victor, Christina og Jeremy: Í þessari sögulegu geimferð takið þið með ykkur hjarta Artemis-teymisins, áræðni bandarísku þjóðarinnar og samstarfsaðila okkar um allan heim, og vonir og drauma nýrrar kynslóðar. Gangi ykkur vel. Góða ferð, Artemis 2,“ sagði hún.
Go to News Site